Mark Mikaels kom of seint
Mikael Egill Ellertsson skoraði eina mark Genoa í 2:1-tapi á heimavelli gegn AC Milan í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag.
Mörk frá Alphadjo Cisse og Christian Pulisic komu gestunum frá Mílanó í 2:0 eftir aðeins nítján mínútna leik en Mikael Egill minnkaði muninn fyrir heimamenn á 88. mínútu.
Genoa er um miðja deild, í 13. sæti með jafnmörg stig en AC Milan er í fjórða sæti fimm stigum frá toppliði Lazio.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗