Handtóku þann sem sparkaði í bíla í Laugardalnum

Innlent | mbl | 8.11.2026 | 19:43

Lögreglan handtók þann sem sparkaði í bílana.

Lögreglan handtók þann sem sparkaði í bílana. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglumenn handtóku í dag aðila sem fór um Laugardalinn sparkandi í bifreiðar í dag.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. 

Fleiri mál á borði lögreglunnar voru til dæmis þjófnaður úr verslun í Múlahverfi í Reykjavík.

Rúða hafði þar að auki verið brotin í miðbænum. Lögregla rannsakar nú málið.

Í miðbænum var einnig tilkynnt um aðila sem tók myndir af starfsfólki í fyrirtæki þar. Lögreglan leysti málið.

Málið er skráð í dagbók lögreglu.

Keyrði á 136 á þar sem hámarkshraði var 90 

Nokkuð var einnig um hraðakstur í dag en þrír ökumenn voru teknir af lögreglu fyrir athæfið.

Einn ók á 136 km/klst þar sem hámarkshraði var 90.

Annar ók á 129 km/klst og sá þriðji á 127 km/klst á 90-götu.

Umferðaróhapp varð í Hafnarfirði en engin slys á fólki. Þar var einnig tilkynnt um þjófnað í verslun.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅