Bíllinn staðnæmdist á nokkru dýpi

Slysið átti sér stað við Kleifá á Snæfellsnesi.

Slysið átti sér stað við Kleifá á Snæfellsnesi. mbl.is/Karítas

Björgunarmaður úr björgunarsveitinni Elliða á Snæfellsnesi var fyrir tilviljun á ferðinni þegar bifreið með tveimur erlendum ferðamönnum fór útaf Snæfellsnesvegi og hafnaði í Kleifá. 

Björgunarmaðurinn var því kominn á vettvang slyssins þegar útkall barst samkvæmt færslu á Facebook-síðu Elliða. 

Tveir björgunarsveitarmenn til viðbótar komu á vettvang beint að heiman, annar þeirra á dráttarvél. Aðstæður fyrir björgunarmenn voru hættulegar en áin var óvenju vatnsmikill vegna úrkomu seinustu daga. 

Fór út af austan við ána

„Bíllinn fór út af austan við ána við enda vegriðsins, og staðnæmdist í ánni á vesturbakkanum ofar vegar, en svo mikill var straumþunginn að þaðan fór hann gegnum ræsið og staðnæmdist á nokkru dýpi og talsverðum straumi neðan við veginn,“ segir í færslunni. 

Björgunarmenn Elliða tóku einnig þátt í að rýma vettvang og tryggja aðstæður í nágrenni slyssins áður en lögreglumenn komu á vettvang. 

Báðir ferðamennirnir liggja nú inni á spítala en lögreglan hefur ekki nánari upplýsingar um líðan þeirra að svo stöddu.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅