Telja þetta liggja að baki ákvörðun Arnars - „Það væri eiginlega sturlað að gera það“
Helgi Fannar og Hörður Snævar gerðu upp helstu fréttir og leiki í Íþróttavikunni á DV/433.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari sagði við fjölmiðla á dögunum að hann myndi ekki herða agareglur þrátt fyrir að menn hafi brotið traust hans og drukkið áfengi í síðasta landsleikjaverkefni.
„Hann hugsar væntanlega bara að menn fari varla að gera þetta aftur. En viðbrögðin næst þyrftu væntanlega að vera harðari, ef menn brjóta af sér. En það væri eiginlega sturlað að gera það,“ sagði Helgi áður en Hörður tók til máls.
„Ég sé það ekki og ég er alveg sammála Arnari í því. Þú ert með fullorðna menn og átt ekki að þurfa að vera með einhverjar smábarnareglur á mönnum. Menn eiga bara að haga sér og láta þetta ekki koma fyrir aftur.
Það væri einhvern veginn galið að þruma upp einhverju regluverki núna. Þeir brutu traust hans og gera það vonandi ekki aftur. Ef sömu menn gera þetta aftur hlýtur eitthvað að breytast.“
Þátturinn er í spilaranum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗