Öruggt hjá Alfreð í Slóvakíu
Íþróttir | Handbolti | mbl | 8.11.2026 | 19:05 | Uppfært 9.11.2026 11:43
Þýska karlalandsliðið í handbolta vann tólf marka sigur á Slóvakíu 39:27 í 7. riðli undankeppni Evrópumótsins í Slóvakíu í dag.
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar eru með fullt hús stiga líkt og Ítalía en Þjóðverjar unnu Belga í fyrstu umferðinni.
Lukas Zerbe var markahæstur hjá Þjóðverjum með sjö mörk, Marko Grgic skoraði sex og Johannes Golla fimm.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗