Halldór Guðmundsson bauð í teiti

Þorsteinn J., Halldór Guðmundsson og Hrefna Haraldsdóttir.

Halldór Guðmundsson fagnaði útkomu bókar sinnar Líf í bókum - Íslenskar bókmenntir í þúsund ár í bókabúð Forlagsins. 

Í bókinni fer hann yfir sögu íslenskra bókmennta frá upphafi til okkar daga. Í bókinni er þúsund ára ævintýraleg atburðarás fjörlega rakin af rithöfundinum sem hefur skrifað margar stórkostlegar bækur eins og ævisögu Halldórs Laxness svo einhver sé nefnd. Í bókinni segir hann frá meginþráðum bókmenntasögunnar, fjölda höfunda og verka, allt frá fornritum til innflytjendabókmennta. 

Það var fjölmennt í boði Halldórs sem fram fór í Bókabúð Forlagsins við Fiskislóð í Reykjavík. Þangað mætti Þorsteinn J. Vilhjálmsson fjölmiðlastjarna, Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og fyrrverandi þingmaður og rithöfundurinn Einar Kárason, Þórunn Sigurðardóttir leikkona og kennari og Silja Aðalsteinsdóttir bókadrottning svo einhverjir séu nefndir. 

Eins og sjá má var gleðin við völd! 

Ingibjörg Eyþórsdóttir og Guðmundur Andri Thorsson.

Ingunn Ásdísardóttir, Sæunn Kjartansdóttir og Guðmundur Jónsson.

Bryndís Bergþórsdóttir og Gunnar Th. Örnólfsson.

Hrafnhildur Halldórsdóttir, Sif Andradóttir og Ásgrímur Guðmundsson.

Dagur Gunnarsson og Hólmfríður Matthíasdóttir.

Auður Jónsdóttir, Sigþrúður Gunnarsdóttir og Ásgeir Brynjar Torfason.

Óskar Árni Óskarsson og Einar Kárason.

Edda Óskarsdóttir og Anna Vilborg Dyrset.

Þórunn Sigurðardóttir, Stefán Baldursson og Silja Aðalsteinsdóttir.

Páll Valsson og Örnólfur Thorsson.

Eyþór Árnason og Silja Aðalsteinsdóttir.

Halldór Guðmundsson og Fanney Benjamínsdóttir.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅