Krefjast fundargerða af leynifundum stjórnarinnar
Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi stjórnarmaður í Landsvirkjun, segir að fundargerðir af tveimur stjórnarfundum fyrirtækisins, sem haldnir voru án vitundar Harðar Arnarsonar, þáverandi forstjóra, verði að koma fram. Hún telur að fundirnir hafi verið ólöglegir. Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi fjármálaráðherra, tekur undir kröfuna og óttast að frekari rannsókn málsins kunni að leiða eitthvað enn alvarlegra í ljós.
Þetta kemur fram í Spursmálum þar sem þau ræða brotthvarf Harðar úr forstjórastóli Landsvirkjunar og þær upplýsingar sem smám saman hafa komið fram um samskipti stjórnar fyrirtækisins og fjármálaráðuneytisins.
Álfheiður, sem sat í stjórn Landsvirkjunar í samtals 14 ár, segir að skýringar stjórnarinnar og Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra hafi tekið breytingum eftir því sem nýjar upplýsingar hafa komið fram.
Í upphafi hafi verið látið í veðri vaka að Hörður hefði einfaldlega ákveðið að hætta vegna ágreinings um stjórnarhætti. Síðan hafi komið fram upplýsingar um fundi sem haldnir voru án hans.
Hvað kemur fram í gerðum fundanna sem Hörður fékk aðeins spurnir af vikum og mánuðum eftir að þeir voru haldnir? Samsett mynd/mbl.is/Eggert/María Matthíasdóttir
Frétti af fundunum löngu síðar
Álfheiður vísar til upplýsinga Viðskiptablaðsins um að forstjóranum hafi í tvígang verið vikið af stjórnarfundum. Auk þess hafi verið haldnir tveir formlegir stjórnarfundir, 23. júní og 23. september, sem hann hafi ekki verið boðaður á.
„Hann vissi ekki einu sinni af því. Hann frétti af fyrri fundinum þremur mánuðum seinna og seinni fundinum þremur vikum seinna,“ segir Álfheiður.
Hún telur þetta alvarlegt brot á þeim stjórnarháttum sem eigi að gilda hjá Landsvirkjun.
„Þannig að það er verið að leyna forstjórann fundum og þessar fundargerðir verða að koma fram.“
Hún spyr jafnframt hvað hafi verið rætt á þessum fundum, sem hún nefnir leynifundi stjórnarinnar, og bendir á að samkvæmt lögum beri forstjóra að sitja stjórnarfundi fyrirtækisins.
Álfheiður Ingadóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson ræða við Stefán Einar Stefánsson í Spursmálum. mbl.is/María Matthíasdóttir
Óttast að meira komi í ljós
Sigurður Ingi tekur undir kröfuna um að fundargerðirnar verði birtar. Hann segir nauðsynlegt að upplýsa hvað hafi farið fram á fundunum, enda virðist framkvæmd þeirra hafa brotið gegn lögum um Landsvirkjun.
„Það er auðvitað algjörlega nauðsynlegt að fá fram fundargerðir á fundum sem eru, að því er virðist, brot á lögum um Landsvirkjun,“ segir hann.
Álfheiður grípur þá fram í og segir: „Ólöglegir fundir.“
Sigurður Ingi segir að málið sé nú komið til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis og að gagnaöflun geti leitt til þess að fleiri alvarleg atriði komi í ljós.
„Það sem ég hef áhyggjur af er að nú fari í hönd svona einhver vinna að safna gögnum og átta sig á einhverjum hlutum. Það getur komið eitthvað upp í því ferli sem gerir málið enn alvarlegra.“
Hann tekur þó fram að hann viti ekki hvort svo verði.
Hverja ræddu stjórnarmenn við?
Álfheiður vekur einnig athygli á því að samkvæmt yfirlýsingu stjórnar Landsvirkjunar hafi stjórnarmenn rætt við utanaðkomandi aðila. Hún telur nauðsynlegt að upplýsa hverjir þeir hafi verið.
„Voru þeir að tala við samkeppnisaðila eins og HS Orku eða Orkuveituna eða voru þeir að tala við viðskiptavini? Voru þeir að tala við Alcoa Fjarðaál, Rio Tinto? Elkem, hvað voruð þið, við hvern voruð þið að tala?“ spyr Álfheiður.
Hún segir að margt eigi enn eftir að koma í ljós um málið.
Sigurður Ingi telur þegar ljóst að traust til stjórnar Landsvirkjunar og fjármálaráðherra hafi beðið verulegan hnekki.
„Traustið til stjórnarinnar, til Landsvirkjunar að einhverju leyti, en klárlega til ráðherrans og ríkisstjórnarinnar hvað varðar þetta mál, hún er brotin, hún er mjög alvarlega brotin og það er þeirra að reyna að leysa það.“
Viðtalið við Sigurð Inga og Álfheiði er aðgengilegt í heild sinni í spilaranum hér að neðan:
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
