Manchester United í fallsæti eftir jafntefli

Aston Villa og Manchester United gerðu 4:4 jafntefli í 10. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Eftir leikinn er Aston Villa með 13 stig í 10. sæti deildarinnar en Manchester United er með 8 stig í 18. sæti deildarinnar og fallsæti.

United miklu betri í fyrri hálfleik

Það reka væntanlega einhverjir upp stór augu þegar ég skrifa að Manchester United hafi verið miklu betra liðið í fyrri hálfleik. United fékk 12 marktækifæri gegn 6 Aston Villa.

Það voru 59 sekúndur liðnar af leiknum þegar fyrsta mark leiksins kom. Þá barst boltinn til Alysson hægra megin í vítateig United og skaut hann boltanum milli fóta Senne Lammens í marki United og staðan var 1;0 fyrir Aston Villa.

Skelfileg byrjun Manchester United í leiknum hélt áfram því á 4. mínútu var staðan orðin 2:0 fyrir Aston Villa. Gestirnir fengu aukaspyrnu sem barst inn í teig United. Leny Yoro skallaði boltann frá en á endanum barst boltinn til Nicolas Jackson sem skoraði af öryggi.

United fékk réttilega dæmda vítaspyrnu á 16. mínútu þegar brotið var á Matheus Cunha. Úr spyrnunni skoraði Bruno Fernandes og staðan var 2:1 fyrir Aston Villa.

Eftir þetta gjörbreyttist leikurinn og lið United réði lögum og lofum á vellinum. Það endaði með því að United jafnaði leikinn á 44. mínútu þegar Youri Tielemans skoraði gegn sínu gamla liði eftir sendingu frá Noussair Mazraoui.

Staðan í hálfleik 2:2.

United endurtók fyrri hálfleikinn og byrjaði skelfilega

Eftir fyrri hálfleikinn hefði maður haldið að lið United væri mætt til leiks. Svo reyndist aldeilis ekki vera því Aston Villa skoraði tvö mörk í upphafi seinni hálfleiks.

Það fyrra kom á 48. mínútu þegar Diego Dalot braut heimskulega á leikmanni Aston Villa sem fékk í kjölfarið vítaspyrnu. Úr spyrnunni skoraði fyrirliðinn John McGinn og staðan var 3:2 fyrir Villa.

Seinna markið kom á 53. mínútu þegar Leny Yoro skallaði aukaspyrnu Aston Villa hraustlega á eigið mark. Senne Lammens varði skallann meistaralega en náði ekki að halda boltanum sem barst á endanum til Leon Goretzka sem kom Aston Villa í 4:2 forystu.Eftir þetta róaðist leikurinn að einhverju leyti og liðin skiptust á ágætis marktækifærum.

Varamaðurinn Joshua Zirkzee minnkaðu muninn á annari mínútu uppbótartíma eftir undirbúning Patrick Dorgu og staðan var orðin 4:3 fyrir Aston Villa. 

Leikmenn Manchester United fundu eldmóðinn á nýjan leik því þeim tókst að jafna á sjöttu mínútu uppbótartíma eftir hornspyrnu. Var þar að verki annar varmaður, Patrick Dorgu. 

United bjargaði því stigi í dag á ótrúlegan hátt í ótrúlega fjörugum og skemmtilegum leik. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅