Wolt-sendlar áforma verkfall: Of margir sendlar

„Þeir sem eru að gera þessar kröfur eru hlutfallslega mjög fáir,“ segir Christian Kamhaug, samskiptastjóri Wolt á Íslandi og í Noregi, sem segir það ekki standa til að gera grundvallarbreytingar á verktakafyrirkomulagi fyrirtækisins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hópur sendla sem starfa hjá Wolt hefur tjáð yfirmönnum fyrirtækisins að þeir muni mögulega aftur leggja niður störf vegna kjaradeilna við fyrirtækið, að því er samskiptastjóri Wolt segir í samtali við mbl.is.

Christian Kamhaug, yfirmaður samskipta hjá Wolt í Noregi og á Íslandi, telur að mikill meirihluti sendla sé sáttur við ríkjandi fyrirkomulag, og segir að í kjölfar funda með fulltrúum Wolt-sendla og Eflingar hafi fyrirtækið ráðist í breytingar sem nægi vonandi til þess að koma í veg fyrir verkfallskenndar aðgerðir.

„Þeir sem eru að gera þessar kröfur eru hlutfallslega mjög fáir,“ segir Christian, sem segir það ekki standa til að gera grundvallarbreytingar á verktakafyrirkomulagi fyrirtækisins. 

„Það eru nokkrir tugir manns úr hópi yfir þúsund sendla, þannig að það er eiginlega ekki hægt að segja að þeir endurspegli skoðanir og upplifun hópsins alls. Á fundinn mættu um þrjátíu manns, og umkvörtunarefni þeirra voru mismunandi. Sumt náðum við að leysa strax, en annað sneri að stærri vanda sem við höfum átt við að stríða núna í haust.“

Háannatímabilið lengi að ganga í garð

Sá vandi snýr að því að of margir sendlar hafi verið starfandi miðað við eftirspurn seinni hluta sumars, en eftirspurn eftir Wolt-sendingum er mjög árstíðabundin að sögn Christians. 

„Eftirspurnin dregst verulega saman á sumrin vegna þess að fólk er í fríi, en í kringum ágúst-september byrjar háannatímabilið hjá okkur og þá reynum við að ráða fleira fólk til þes að anna aukinni eftirspurn.“

Vinnufyrirkomulag Wolt-sendla er með þeim hætti að þegar þeir vilja hefja störf skrá þeir sig sem „virka“ á Wolt-appinu og sjá þá hvaða verkefni eru í boði, og geta kosið að samþykkja eða hafna þeim sem þeir vilja. Þeir fá síðan greitt fyrir hvert verkefni.

Í haust jókst eftirspurnin eftir þjónustu Wolt-sendla hægar en búist var við og því lækkuðu. Það leiddi meðal annars til þess að meðalgreiðslur til Wolt-sendla lækkuðu um 40% á einu ári. Wolt

Lægri laun á hvern sendil

Í haust jókst eftirspurnin hins vegar hægar en búist var við að sögn Christians, og því hafi virkum sendlum boðist færri verkefni, sem leiddi til lægri launa á dag fyrir hvern sendil en ella.

Fyrirtækið hafi nú ráðist í aðgerðir til þess að reyna að koma á betra jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar.

„Meginvandinn hefur verið sá að það hafa verið of margir sendlar á götum úti og við erum að vinna að því að laga það með því að fækka starfsmönnum og auka eftirspurn,“ segir Christian.

„Ef þú starfar sem sendill þá munum við ekki segja þér upp, en í ljósi aðstæðna höfum við orðið að stöðva ráðningu nýrra sendla og erum einnig í markaðsherferð til þess að reyna að auka eftirspurn. Það virðist vera að bera árangur, og við virðumst vera að ná aðeins betra jafnvægi á milli framboðs sendla og eftirspurn eftir þjónustu þeirra.“

Það fer eftir ýmsum þáttum hversu vel sendlar fá greitt fyrir hvert verkefni að sögn Christians, til að mynda hversu langa vegalengd þarf að ferja pöntunina og hversu stór pöntunin er, og þegar eftirspurnin er mikil en fáir sendlar á götum úti bætast við bónusar sem ætlað er að hvetja sendla til þess að skrá sig til leiks.

Reynt að bæta úr umkvörtunarefnum

Hvað varðar deilur milli fyrirtækisins og sendla þess segir Christian að fyrirtækið hafi tekið kvörtunum sendlanna og reynt að gera úrbætur úr þeim.

Sendlar fái nú að sjá þá vegalengd sem þarf að ferja pöntunina, í stað þess að sjá einungis áætlaðan tíma, ásamt „hitakorti“ af því hvar flest verkefni er að fá.

Hins vegar hafi hópur sendla, sem starfað hafi náið með Eflingu, tjáð fyrirtækinu að þeir hyggist fara í „verkfall“.

„Þessi hópur hefur starfað náið með Eflingu og fengið leiðbeiningar um það hvernig hægt sé að skapa deilur við okkur, en við vonum að þessir fundir með þeim yfir þessum umkvörtunarefnum hjálpi til við að koma í veg fyrir að þeir fari í hálfgert „verkfall“,“ segir Christian.

„Ef þeim finnst þeir verða að grípa til svoleiðis aðgerða til þess að ná athygli okkar, þá er það allt í góðu lagi. En við viljum mun frekar eiga í samtali við sendlana.“

„Einfaldlega ekki satt“

Christian segir jafnframt að framsetning á þeirri staðreynd að greiðslur fyrirtækisins til sendla hafi lækkað um 40 prósent milli ára sé gjarnan villandi. 

„Það að við höfum lækkað launin um 40% er einfaldlega ekki satt. Það er sama þóknun fyrir hverja sendingu og hefur alltaf verið, en þar sem færri verkefni bjóðast hverjum og einum sökum þess að sendlarnir eru of margir eru meðallaun sendla á dag lægri en þau væru ef það væri jafnvægi þar á,“ segir Christian.

Hann hafnar jafnframt alfarið ásökunum um að Wolt stundi gerviverktöku.

„Ef að einhver heldur áfram að kalla það fyrirkomulag sem við erum með gerviverktöku, og heldur því fram að starfsemin sé ólögleg, þá er það ekki satt. Okkar starfsemi er innan ramma laganna, og allir sendlar okkar á Íslandi eru sjálfstæðir verktakar. Það er ekkert nýtt fyrirkomulag; þetta sést hjá stéttum á borð við tannlækna og blaðamenn,“ segir Christian.

„Þetta er ekki gerviverktaka, þetta er alvöru verktaka. Sendlar ráða eigin vinnutíma, ráða því hvaða pantanir þeir samþykkja, og þeir geta í rauninni ráðið hversu mikið þeir þéna.“

Aðspurður um það hvernig fyrirtækið tryggi að sendlarnir, sem flestir eru af erlendum uppruna, séu meðvitaðir um réttindi sín segir Christian fyrirtækið miðla eins miklum upplýsingum og unnt sé.

Mikilvæg gátt inn á íslenskan vinnumarkað

Fyrirtækið geti ekki boðið starfsmönnum upp á eiginlegar fræðslur eða ráðgjöf varðandi réttindi sín þar sem það sé ekki eiginlegur vinnustaður, en á vefsíðu fyrirtækisins séu þó upplýsingar og leiðbeiningar varðandi réttindi sendlanna. 

En hvernig dregur fyrirtækið úr hættu á því að sendlar sem hafa takmarkað vald á íslensku lendi í vanskilum með skata eða lífeyrisgreiðslur vegna þess hve flókið verktakafyrirkomulagið er?

„Við eigum í samstarfi við fyrirtæki á borð við Freelance Pay á Íslandi sem aðstoðar sendla við að senda okkur reikninga og greiða úr skattamálum og slíkt,“ segir Christian. „Við gætum örugglega gert ennþá betur, en við reynum okkar besta og skiljum að það er flókið að vera í verktakavinnu á Íslandi.“

Hann telur þó að Wolt sé enn sem áður góður starfsvettvangur, enda sé hann ákveðin gátt inn á íslenskan vinnumarkað fyrir þá sem hafa hvorki tengingar né starfsreynslu á Íslandi og þekkja ekki tungumálið.

„Ég er nokkuð stoltur af því að við getum boðið upp á þennan aðgang að íslenskum vinnumarkaði fyrir þá þrjá fjórðu hluta af okkar sendlum sem ekki fæddust á Íslandi, vegna þess að það getur verið erfitt að komast inn á vinnumarkað í nýju landi ef maður talar ekki tungumálið,“ segir Christian.

Þá sé meirihluti sendla ánægður með starfsaðstæður, þó þeir myndu vissulega flestir vilja fá meira borgað.

„En það er ekkert nýtt; ég myndi alveg vilja fá meira borgað líka, og ég er viss um að það myndu flestir vilja,“ segir Christian

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅