Myndir: Alvöru partí á laugardagskvöldi Airwaves

Gestir á Iceland Airwaves-tónlistarhátíðinni létu ekki smá rigningu stoppa sig í að flakka á milli staða á laugardagskvöldinu. Þriðja kvöldið bauð upp á marga hápunkta og eftir stendur að hátíðin var hreint út sagt frábær.

Löng röð myndaðist fyrir utan Lemmy þegar írska rokksveitin Bleech 9:3 steig á svið. Reyndar var röð þar eiginlega allt kvöldið enda dagskráin ansi spennandi. Á eftir Írunum steig á svið breska hljómsveitin Heartworms sem leidd er af Jojo Orme. Huggulegt popprokk var bruggað og salurinn tók vel á móti sveitinni. Það var svo knackered sem lokaði kvöldinu á Lemmy.

Mugison var í góðum gír í Ráðhúsinu.

Dagskráin í Ráðhúsinu dró einnig að sér marga gesti. Þar var fyrst á svið Mackenzie Leighton en síðan var komið að Bjarna Daníel. Við tóku tveir afar vinsælir listamenn, Mugison og svo Una Torfa. Þá var komið að Kaktusi Einarssyni sem mætti með hörkuband með sér og náði salnum vel með sér. Ný plata hans hefur vakið talsverða athygli og stóð Kaktus vel undir því að vera eitt aðalnúmerið þetta kvöld.

Lokaatriðið í Ráðhúsinu á laugardagskvöld var breska partísveitin The Itch sem var í ágætis formi.

Mugison.

Í Kolaportinu var rapparinn Liim frá Harlem. Hann var hress og spjallaði við áhorfendur á milli laga og virtist músíkin leggjast ágætlega í þá. Næst var komið að Birni sem var í góðu formi. Tvíeykið Sex Week tók svo við og róaði stemninguna aðeins niður áður en komið var að lokaatriðinu, Inspector Spacetime. Þvílíkur lokakafli, alvöru partí.

Una Torfa í Ráðhúsinu.

Bjarni Daníel í Ráðhúsinu.

Hinn spænski Ruvenruven í Iðnó.

Mackenzie Leighton opnaði kvöldið í Ráðhúsinu.

Grima frá Spáni í Iðnó.

Spouses á Lemmy.

LiteFun á Rósenberg.

Á Rósenberg var punktó.

Amor Vincit Omnia.

Birnir var ferskur í Kolaportinu.

Vicky Sometani á Nasa.

Blood Harmony á Rósenberg.

Valborg Ólafs á Rósenberg.

Róshildur kom fram á Nasa.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅