„Verða með nýjan stjóra í næsta leik“
Jamie Carragher sérfræðingur Sky Sports telur að Pierre Sage stjóri Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta verði látinn taka poka sinn hjá félaginu.
„Ég held að þetta hafi verið ein besta frammistaða Crystal Palace á tímabilinu. Liverpool vann 3:1 á útivelli en markvörður liðsins var besti maður vallarins. Það segir sitt um hversu vel Palace lék," sagði Carragher.
„En ég held að ekki sé hægt að byggja ákvörðun á einni góðri frammistöðu, sérstaklega þegar nýr maður er kominn inn í ensku úrvalsdeildina og hefur átt mjög erfitt uppdráttar hingað til.
Ég held að eigendurnir geti ekki tekið áhættuna þegar haft er í huga hversu miklir fjárhagslegir hagsmunir eru í húfi. Palace hefur leikið 14 tímabil í ensku úrvalsdeildinni og við eigum ekki von á því að sjá félagið í botnsætunum. Þetta er rótgróið úrvalsdeildarfélag.
Ég held því miður að ákvörðunin verði tekin og Pierre Sage látinn fara. Ég býst við því að Crystal Palace verði búið að ráða nýjan knattspyrnustjóra þegar liðið leikur næst í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Carragher.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗