Orðið á götunni: Framsókn skilar auðu eftir miðstjórnarfund – flokkurinn gæti þurrkast út af þingi
Mikið tómahljóð var á miðflokksfundi Framsóknar sem haldinn var um helgina á Laugarbakka. Lilja Alfreðsdóttir, formaður flokksins og fyrrum þingmaður, flutti ræðu sem var full af innantómum upphrópunum sem engin innstæða er fyrir. Það er sorglegt fyrir flokkinn að hann hafi ekkert fram að færa nema slúður þegar kjörtímabil núverandi ríkisstjórnar er hálfnað. Framsókn galt afhroð í síðustu kosningum, missti þá átta þingmenn og fékk einungis fimm menn kjörna á þing. Ætla hefði mátt að flokkurinn notaði tímann í stjórnarandstöðu til að endurskipuleggja sig og koma með nýtilegar tillögur inn í umræðuna. Svo var ekki á fundinum.
Orðið á götunni er að Framsókn sé vorkunn vegna þess að formaðurinn, Lilja Alfreðsdóttir, á ekki einu sinni sæti á Alþingi og kemur því fram eins og þorskur á þurru landi í þjóðmálaumræðunni. Lilja féll út af þingi í síðustu kosningum eins og tveir aðrir ráðherrar flokksins. Annað eins afhroð en fáheyrt. Hún bauð sig svo fram til formanns og hafði betur gegn Ingibjörgu Isaksen þingmanni Norðaustur kjördæmis. Höfuðmarkmið Lilju var þá að losna við Sigurð Inga Jóhannsson af stóli formanns og tryggja að fylgisfólk hans yrði valdalaust í flokknum. Það tókst. En ekkert annað hefur tekist. Flokkurinn fékk einungis 8% fylgi í kosningunum, hið slakasta í sögu flokksins. En eftir að Lilja tók við flokknum er fylgið samkvæmt nýjustu könnun Gallups komið niður í 6%. Enginn viðsnúningur til hins betra, einungis áframhaldandi tap og nú undir stjórn Lilju.
Það merkilega er að fimm manna þingflokkur Framsóknar er sagður vera þríklofinn. Lilja veðjar alfarið á Stefán Vagn Stefánsson frá Sauðárkróki, sem gegnir bæði stöðu varaformanns og formanns þingflokksins, og Þórarinn Pétursson. Andstæðingar Lilju í þingflokknum eru Sigurður Ingi Jóhannsson og Ingibjörg Ísaksen sem Lilja reynir að sniðganga. Þriðji parturinn af þingflokknum er svo Halla Hrund Logadóttir sem vill skiljanlega hvorugri fylkingunni tilheyra.
Í ræðu sinni á miðstjórnarfundinum reiddi Lilja einungis fram innihaldslausa frasa eins og að tvö ára hafi glatast og að verðbólga hafi aukist lítillega. Hún ætti að vita hvernig stríðsrekstur Bandaríkjamanna hefur hækkað olíuverð til muna á heimsmarkaði sem hefur áhrif til stórhækkunar um allan heim. Hún staldraði ekki við þá staðreyndi að nú stefnir í lækkun verðbólgu og lækkun vaxta á Íslandi innan fárra vikna. Hún var greinilega svekkt yfir því að nú yrðu fjárlög afgreidd hallalaus sem tókst ekki í þeim ríkisstjórnum sem hún átti sæti í áður en hún féll út af þingi. Þá var ríkið ávallt rekið á yfirdrætti sem þeim í Framsókn virðist hafa þótt í góðu lagi. Annað sem hún hafði fram að færa flokkast undir innantómt raus og útúrsnúninga sem ábyrgur stjórnmálaflokkur byði ekki upp á. En Framsókn er fráleitt ábyrgur stjórnmálaflokkur.
Orðið á götunni er að ekki þyrfti að koma á óvart þó Framsóknarflokkurinn þurrkaðist út af Alþingi í næstu kosningum eftir tvö ár. Rétt eins og Vinstri græn og Píratar í síðustu kosningum. Kjósendur eru óðum að gera sér ljóst að Framsókn hefur ekkert fram að færa og er óþörf í íslenskum stjórnmálum. Flokkurinn á ekkert erindi lengur.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗