Þess vegna getur verið snjallt að drekka eitt mjólkurglas fyrir svefninn
Pressan
Sunnudaginn 8. nóvember 2026 18:30
Ætli þau hafi fengið sér mjólkurglas fyrir svefninn?
Þegar við eldumst missum við hægt og rólega vöðvamassa. Af þeim sökum er mikilvægt að mataræðið okkar innihaldi nægilega mikið af prótíni.
Í umfjöllun Dobruchut um þetta kemur fram að mjólk innihaldi prótín sem hjálpa líkamanum við að viðhalda vöðvunum og byggja þá upp. Mjólkurdrykkja kemur sér því sérstaklega vel fyrir þá sem stunda reglulega hreyfingu og segir miðillinn að fyrir marga geti það verið snjallt að fá sér eitt mjólkurglas fyrir svefninn.
Mjólk inniheldur einnig kalsíum sem er mikilvægt fyrir vöðvana. Eitt mjólkurglas inniheldur um 300 milligrömm af kalsíum en það er um þriðjungur af ráðlögðum dagsskammti.
En því miður þola ekki allir að drekka mjólk, til dæmis þeir sem þola ekki laktósa. Svo hugsa sumir út í hitaeiningarnar því mjólk inniheldur auðvitað hitaeiningar og þær vilja sumir forðast.
Svo getur mjólkurdrykkja fyrir svefninn auðvitað kallað á klósettferð um miðja nótt.
En mjólk inniheldur meðal annars efnið trytofan en það notar líkaminn til að búa til efni sem hjálpa honum við að stýra svefninum. Niðurstöður rannsókna hafa sýnt að mjólkurneysla fyrir svefninn geti gert fólki auðveldara fyrir að sofna og bæti einnig svefngæðin.
En mjólk hefur ekki sömu áhrif á alla og því þarf hver og einn að finna út úr því hvort það henti að fá sér mjólkurglas fyrir svefninn.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗