Framsókn krefst tafarlausrar stefnubreytingar

Fundurinn fór fram á Laugarbakka um helgina.

Fundurinn fór fram á Laugarbakka um helgina. Ljósmynd/Aðsend

Ríkisstjórnin má ekki rétta ríkisfjármálin af með því að veikja fjárhagslegt öryggi fjölskyldna í landinu og draga þróttinn úr atvinnulífinu. 

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í stjórnmálaályktun miðstjórnarfundar Framsóknar sem fram fór á Laugarbakka um helgina. 

Miðstjórnin krefst tafarlausrar stefnubreytingar í hagstjórn landsins. 

Vilja takmarka gjaldahækkanir

Lagt er til að hækkanir kílómetragjalds, krónutölugjalda og kolefnisgjalds verði takmarkaðar við 2,5%.

„Það er með öllu óboðlegt að fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir leggist hlutfallslega þyngst á tekjulægri fjölskyldur landsins. Framsókn skorar á stjórnvöld að birta heildarmat á áhrifum skatta, gjalda og skerðinga eftir tekjum, fjölskyldugerð og búsetu áður en ákvarðanir eru teknar.“

Einnig er lagt til að skattleysismörk hækki um 0,5% umfram verðlag og fjárhæð barnabóta fylgi verðbólgumarkmiði Seðlabankans. 

„Framsókn hafnar fjársveltisstefnu stjórnvalda gagnvart farsæld barna og krefst þess að ríkið tryggi sveitarfélögum fjármagn til að veita börnum þann stuðning sem nauðsynlegur er. Það er með öllu ótækt og óverjandi að ríkisstjórnin standi ekki við þá samninga sem gerðir hafa verið, ekki síst vegna barna með fjölþættan vanda.“

Vel fór um framsóknarmenn á Laugarbakka.

Vel fór um framsóknarmenn á Laugarbakka. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Vilja óbreytta loftbrú

Miðstjórnin hefur áhyggjur af kólnandi húsnæðismarkaði og telur mikilvægt að hugmyndir flokksins um endurskipulagningu á húsnæðislánaframboði nái fram að ganga. Þá telur hún mikilvægt að styðja við húsnæðissamvinnufélög til þess að efla enn frekar framboð af fjölbreyttu húsnæði. 

Miðstjórn Framsóknar, eins og fjölmargar sveitarstjórnir um land allt, skorar þá á stjórnvöld að endurskoða fyrirhugaðar breytingar á loftbrú. Framsókn leggst gegn aaukinni skattheimtu á ferðaþjónustu og vill að virðisaukaskattur á aðgang að baðlónum haldist óbreyttur í 11%.

Einnig var ályktað á fundinum um að Landsvirkjun skyldi vera áfram í eigu þjóðarinnar. Virða beri sjálfstæði fyrirtækisins og tryggja faglega stjórn þess. 

Samkvæmt miðstjórninni hefur erindi Framsóknar aldrei verið brýnna og nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar hafi sýnt það glögglega mikill kraftur, kjarkur og dugnaður búi í fulltrúum flokksins og grasrót hans. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅