Ungir erlendir ferðamenn: Báðir á sjúkrahúsi

Löng bílaröð myndaðist vegna slyssins. Snæfellsnesvegi var lokað um stund en hefur verið opnaður aftur. mbl.is/Karítas

Þeir sem slösuðust í dag eftir að bifreið hafnaði í Kleifá eru erlendir ferðamenn.  

Báðir liggja nú inni á spítala en lögreglan hefur ekki nánari upplýsingar um líðan þeirra að svo stöddu.

Ferðamennirnir eru í kringum þrítugt.

Jónas Hallgrímur Ottósson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á Vesturlandi, greinir frá þessu í samtali við mbl.is.

Hann segir tildrög slyssins vera í rannsókn. Kleifá er á sunnanverðu Snæfellsnesi.

Þyrla Landhelgisgæslunnar Landhelgisgæslan sótti einn á vettvang og flutti á sjúkrahús í Reykjavík. mbl.is/Árni Sæberg

Þyrla sótti einn

Annar ferðamannanna, sem óku á Snæfellsnesvegi, var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík. Þyrlan var kölluð út á hæsta forgangi.

Hinn farþeginn var fluttur með sjúkrabíl af vettvangi slyssins. Sá komst út úr bílnum af sjálfsdáðum en björgunarsveitarmenn urðu að sækja hinn úr ánni.

Löng bílaröð myndaðist þegar veginum var lokað af viðbragðsaðilum vegna slyssins. Hann hefur nú verið opnaður aftur að því er kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅