Sjóðheitur Orri Steinn reyndist hetjan

Orri Steinn Óskarsson er í fantaformi.

Orri Steinn Óskarsson er í fantaformi. AFP/Ander Gillenea

Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson skoraði sigurmark Real Sociedad í sigri á Rayo Vallecano, 1:0, í efstu deild spænska fótboltans í San Sebastian í dag. 

Sociedad er komið með 22 stig í fimmta sæti eftir sigurinn. 

Mark Orra kom á 67. mínútu en hann lék allan leikinn fyrir Sociedad. 

Orri hefur verið sjóðheitur upp á síðkastið og skorað fimm mörk í síðustu sex leikjum sínum í öllum keppnum. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅