Trönuberjasafi vinnur gegn þvagfærasýkingu – Rannsókn bendir til annars ávinnings
Það er stundum mælt með því að fólk drekki trönuberjasafa til að vinna gegn þvagfærasýkingu. Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til að safinn geti einnig komið að gangi gegn öðrum kvilla.
Um litla rannsókn vísindamanna við UIC College of Dentistry í Chicago er að ræða. Hún hefur verið birt í vísindaritinu Scientific Reports.
Niðurstöður hennar eru að hreinn, sykurlaus trönuberjasafi geti stöðvað vöxt baktería í munninum og haldið sýrunni, sem bakteríur mynda í munninum, niðri.
22 tóku þátt í rannsókninni, 14 börn á aldrinum sjö til tólf ára og átta fullorðnir á aldrinum 18 til 64 ára.
Þátttakendunum var skipt í þrjá hópa. Einn hópurinn skolaði munninn með sykurlausum trönuberjasafa, annar með sætum trönuberjasafa og sá þriðju með 27% safa eða hreinu vatni.
Vísindamennirnir mældu bakteríumagnið í munninum fyrir munnskolunina og 30 mínútum eftir hana.
Hjá fullorðnum minnkaði bakteríuframleiðslan um 44 prósent og um 33 prósent hjá börnunum þegar þau skoluðu munninn með hreinum trönuberjasafa. Sæti safinn og vatnið höfðu ekki sömu áhrif.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗