„Sjáandi“ með óhugnanlega spá um Bandaríkin – „Trump er örvæntingarfullur“

Pressan

Sunnudaginn 8. nóvember 2026 17:30

Donald Trump Bandaríkjaforseti.

Algjört rafmagnsleysi í allri Norður-Ameríku, ísköld svik Kremlverja og forseti sem er við að brotna algjörlega saman. Þetta er hin svarta spá bandaríska YouTube-þáttastjórnandans Dave Johnson á Moon Ride rásinni. Hann er einnig sjálfyfirlýstur sjáandi.

Hann segir að heimsbyggðin standi frammi fyrir dramatískum atburðum sem muni hafa áhrif á raforkudreifingu í Bandaríkjunum og valda miklum landpólitískum skjálfta.

Hann segir að Vladímír Pútín mun notfæra sér tækniþróun og gervigreind til að lama bandaríska raforkukerfið og láta Bandaríkjamenn þar með sitja í myrkrinu.

„Ég sé ljósin slökkna í Bandaríkjunum og ég hef miklar áhyggjur af hvað gervigreind getur gert,“ sagði Johnson að sögn Newsner.

Hann segist hafa séð Pútín sem vinni í leyni gegn Bandaríkjunum og láti umfangsmikla tölvuárás lama  Bandaríkin.  Þessi óvænta þróun mun að hans sögn hafa áhrif á Hvíta húsið og að Donald Trump muni standa eftir magnvana.

„Trump er örvæntingarfullur. Ég hef aldrei séð hann svona örvæntingarfullan. Hann missir gjörsamlega stjórn á sér.,“ sagði Johnson.

Hann segist einnig hafa séð að stríðsátökin í Evrópu færist í aukana því stríðið í Úkraínu muni neyða önnur Evrópuríki til að blanda sér í málin. Þessi þróun mun að hans sögn leggja mikinn þrýsting á bandaríska stjórnmálamenn og muni Repúblikanaflokkurinn klofna í herðar niður. „Þetta verður til þess að Trump virðist vera veikburða,“ sagði hann.

Hann leggur áherslu á það við fylgjendur sína að heimsendir sé ekki yfirvofandi en hann hvetur fólk samt sem áður til að undirbúa sig undir hið versta.

Hann gagnrýnir einnig bandaríska valdhafa og segir að þeir hafi brugðist trausti almennings og skapað aðstæður þar sem heimurinn getur ekki lengur stólað á stórveldið.

„Trump hefur brugðist og ég held að það sé eitt sem okkur öllum yfirsést. Þetta eru bara hverjar hörmungarnar á fætur annarri, engin getur treyst á Bandaríkin lengur. Í hreinskilni sagt, þá er þetta Repúblikönum að kenna. Alveg 100%,“ sagði hann.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅