„Markmiðið er alltaf að skapa fjölbreytta og skemmtilega upplifun fyrir alla“

Sunna Magnúsdóttir hefur haft umsjón með Jólaþorpinu undanfarin fjögur ár og segir alltaf jafn skemmtilegt að sjá það taka á sig mynd. Ljósmynd/Aðsend

Nú styttist í að Jólaþorpið í Hafnarfirði vakni til lífsins og komi gestum og gangandi í jólaskap. Undirbúningurinn er í fullum gangi og Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri menningar- og ferðamála hjá Hafnarfjarðarbæ, segir alltaf jafn skemmtilegt að sjá þorpið taka á sig mynd á hverju hausti. Hún hefur haft umsjón með því undanfarin fjögur ár.

„Jólaþorpið í Hafnarfirði hóf göngu sína árið 2003. Það hefur frá þeim tíma þróast úr litlum jólamarkaði yfir í einn þekktasta aðventuviðburð landsins. Tuttugu jólahús voru keypt frá Þýskalandi það ár og fyrstu árin var það heljarinnar verkefni að fylla þau hverja helgi en í dag er staðan þveröfug. Eftirspurnin er gríðarleg og mun fleiri vilja taka þátt en við getum komið fyrir.“

Þótt jólin séu flestum fjarri huga í ársbyrjun er þá þegar farið að leggja drög að næsta Jólaþorpi. „Stóru línurnar eru lagðar strax í janúar og febrúar en hjá mér fer dagleg vinna af stað í ágúst. Þá tekur við yfirferð umsókna, skipulagning dagskrár og samhæfing fjölmargra viðburða. Markmiðið er alltaf að skapa fjölbreytta og skemmtilega upplifun fyrir alla aldurshópa yfir aðventuna.“

Jólaþorpið í Hafnarfirði verður brátt opnað. Það býður gestum upp á skemmtilega dagskrá sem kemur öllum í hátíðarskap. Ljósmynd/Aðsend

Opnunarkvöldin standa upp úr

Sunna segir samspil skreytinga, tónlistar og mannlífs skapa þá notalegu stemningu sem einkennir þorpið. „Stemningin í þorpinu er notaleg, hlýleg og afslöppuð. Hér geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það eru fallegu skreyttu söluhúsin, ljósin sem lýsa upp myrkrið, tónlistin eða einfaldlega gleðin og samveran sem fylgir aðventunni.“

Heimsókn í Jólaþorpið hefur jafnframt fest sig í sessi sem hluti af jólahefðum margra fjölskyldna.

„Við sjáum marga gesti koma aftur ár eftir ár og fyrir margar fjölskyldur er heimsókn í Jólaþorpið orðin fastur liður í aðdraganda jólanna. Helgarnar eru sex hjá okkur og við segjum stundum í gríni að aðventan sé aðeins lengri í Hafnarfirði en annars staðar.“

Sjálfri finnst Sunnu sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með yngstu Hafnfirðingunum leggja sitt af mörkum við undirbúninginn. „Eitt af uppáhaldsaugnablikunum mínum er þegar leikskólabörn koma og skreyta trén á svæðinu, en það hefur verið dýrmæt hefð í mörg ár. Það skiptir miklu máli að Hafnfirðingar finni að þeir eigi hlut í Jólaþorpinu og séu stoltir af því.“

Þegar þorpið er opnað og gestirnir streyma að sér hún svo afrakstur vinnunnar undanfarna mánuði. „Mér finnst opnunarkvöldin hverja helgi alltaf standa upp úr. Torgið fyllist af fólki, ljósin kvikna og það er gleði hvert sem litið er. Þá finnur maður hvernig öll vinna síðustu vikna og mánaða hefur skilað sér og ég fer alltaf sérstaklega glöð heim það kvöld.“

Fjöldi fólks leggur leið sína í Jólaþorpið í Hafnarfirði ár hvert. Ljósmynd/Aðsend

Laufabrauð, bókaálfar og ljósadýrð

Gestir geta bæði hlakkað til að hitta kunnugleg andlit og kynnast nýjungum í Jólaþorpinu í ár. Grýla og jólasveinarnir verða á sínum stað ásamt söluaðilum sem hafa tekið þátt um árabil en einnig bætist nýr jólavarningur við úrvalið. „Gestir geta meðal annars notið nýsteikts laufabrauðs og jólapylsu, keypt handverk, jólakransa og keramikvörur. Þá ætla Una og Snotra, nýju hafnfirsku bókaálfarnir, að heimsækja þorpið og gleðja yngstu gestina.“

Jólaþorpið verður opnað föstudaginn 13. nóvember og verður opið á föstudögum kl. 17-20, laugardögum kl. 13-20 og sunnudögum kl. 13-18. Á Þorláksmessu verður opið kl. 13-21. Sunna hvetur gesti til að gefa sér nægan tíma og njóta um leið þess sem miðbær Hafnarfjarðar hefur upp á að bjóða í aðdraganda jólanna.

„Þeim sem koma í fyrsta sinn myndi ég ráðleggja að gefa sér góðan tíma, rölta um Strandgötuna, skoða Jólaþorpið við Thorsplan og kíkja á Hjartasvellið. Síðast en ekki síst mæli ég með göngutúr um Hellisgerði þar sem jólaljósin skapa sannkallaða ævintýrastemningu. Þar komast allir í jólaskap.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅