Framkvæmdastjóri þingflokksins með krabbamein
Sigurjón Njarðarson, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar, hefur greinst með krabbamein og verður því í leyfi frá störfum á næstunni. Stefnt er að uppskurði þegar allar greiningar liggja fyrir, sem hann vonast til að verði á allra næstu vikum.
Þessu greinir Sigurjón sjálfur frá í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum, þar sem hann þakkar vinnuveitendum sínum í þingflokki Viðreisnar fyrir að hafa sýnt sér mikinn stuðning og hlýju.
Eftir að hafa fengið verk í síðuna fyrir nokkrum vikum síðan kveðst Sigurjón hafa farið í skoðun, og þar hafi strax orðið ljóst að eitthvað alvarlegt væri á seyði.
„Nú er ljóst að ég er með krabbamein, sarkmein,“ segir í færslu Sigurjóns.
„Til lukku þá er staðfest er að meinið hefur ekki dreift sér og er þarna bara til verulegs ófriðar í síðunni á mér. Það eru einnig góð tíðindi að meinið telst vera skurðtækt og stefnt er að uppskurði þegar allar greiningar liggja fyrir, vonandi á allra næstu vikum.“
Ekki hefur verið greint frá því hvort einhver muni sinna starfi Sigurjóns á meðan veikindin standa yfir, en Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar, hefur einnig gegnt stöðu framkvæmdastjóra þingflokks Viðreisnar á þessu kjörtímabili.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/54/47/1544775.jpg)