Fimmtán sækja um stöðu safnstjóra
Fimmtán umsækjendur er um stöðu safnstjóra á Gljúfrasteini, húsi Halldórs Laxness í Mosfellsdal.
Fjórir til viðbótar drógu umsókn sína til baka.
Guðný Dóra Gestsdóttir hefur gegnt stöðunni síðan árið 2004.
Meðal umsækjanda eru Alma Dís Kristínsdóttir, doktor í safnafræði sem hefur m.a. gegnt stöðu safnstjóra á Listasafni Einars Jónssonar, rithöfundurinn Tómas Ævar Ólafsson, Ingi Björn Guðnason, staðarhaldari á Hrafnseyri við Arnarfjörð og Vigdís Jakobsdóttir, verkefnastjóri menningar hjá Kópavogsbæ.
Hér að neðan má sjá lista yfir umsækjendur:
- Alma Dís Kristinsdóttir, doktor í safnafræði og sérfræðingur á safni
- Andrea Þormar, safnafræðingur
- Atli Freyr Sævarsson, verslunarstjóri og ráðgjafi
- Björg Kjartansdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri
- Haukur Hafliði Nínuson, arkitekt
- Hrafn Sveinbjarnarson, sagnfræðingur
- Inga María Leifsdóttir, menningarfræðingur
- Ingi Björn Guðnason, framkvæmdastjóri
- Jón T Unnarson Sveinsson, upplýsingafræðingur og MA nemi í menningarstjórnun
- Karen María Jónsdóttir, stafrænn vörustjóri
- María Karen Sigurðardóttir, stafrænn vörustjóri
- Tómas Ævar Ólafsson, rithöfundur og dagskrárgerðarmaður
- Vigdís Jakobsdóttir, viðburðastjóri menningarmála
- Vigdís Rún Jónsdóttir, listfræðingur
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗