Skurðlæknar björguðu lífi lögreglumanns í Kraká

Skurðlæknunum tókst að bjarga lífi lögreglumannsins.

Skurðlæknunum tókst að bjarga lífi lögreglumannsins. AFP/Wojtek Radwanski

Skurðlæknar björgðu lífi lögreglumanns eftir skotárásina í miðbæ Kraká í gær og sennilega fleirum.

Lögreglumaðurinn skiptist á skotum við hryðjuverkamann sem ók inn á fjölfarið torg í borginni í Póllandi og hlaut fyrir vikið lífshættulega áverka.

Hætt var við því að honum myndi blæða út en skurðlæknar, sem sátu að snæðingi þegar skotárásin hófst, hlúðu að sárum lögreglumannsins og stöðvuðu blæðinguna. 

BBC greinir frá. Sex manns dóu í árásinni sem rannsökuð er sem hryðjuverk. Þrír fundust þar að auki látnir heima hjá hinum grunaða, systir og foreldrar hans.

Lögreglumenn á vettvangi.

Lögreglumenn á vettvangi. AFP/Wojtek Radwanski

„Pabbi, þeir eru að skjóta fólk“

Prófessorinn Michal Pędziwiatr og dr. Mateusz Wierdak sátu báðir nærri torginu við hádegisverðinn þegar sonur hins fyrrnefnda hljóp upp að honum og kallaði: 

„Pabbi, þeir eru að skjóta fólk þarna, fólk fellur niður á jörðina.“

Læknirinn segir í samtali við innlenda miðla að læknarnir hafi hlúð að sárum hryðjuverkamannsins, eins og lögreglumannsins, og fleirum á vettvangi.

„Þegar kemur að því að bjarga lífum þá skiptir ekki máli hverra líf það eru,“ segir Pędziwiatr.

Sextán eru slasaðir eftir árásina í þessari næststærstu borg Póllands. Þar á meðal eru tveir lögreglumenn.

Þrír fundust látnir heima hjá hinum grunaða, systir hans og foreldrar. AFP/Bartosz Siedlik

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅