Eistland - Ísland, staðan er 10:24

Bjarki Már Elísson fór á kostum í dag.

Bjarki Már Elísson fór á kostum í dag. mbl.is/Eyþór Árnason

Bjarki Már Elísson fór mikinn fyrir íslenska landsliðið í handbolta þegar liðið vann öruggan sigur gegn Eistlandi í 3. riðli undankeppni Evrópumótsins í Tallinn í Eistlandi í dag.

Leiknum lauk með þrettán marka sigri Íslands, 39:26, en Ísland er með fjögur stig eða fullt hús stiga í efsta sæti riðilsins líkt og Serbía.

Bjarki Már skoraði fyrsta mark leiksins eftir mínútu leik en hann fór á kostum fyrir íslenska liðið í fyrri hálfleik.

Þó nokkuð jafnræði var með liðunum á upphafsmínútum og var staðan jöfn, 3:3, eftir fimm mínútna leik. Íslenska liðið skoraði þrjú mörk í röð, komst í 6:3, en var með þriggja marka forskot næstu mínúturnar.

Bjarki Már kom Íslandi fjórum mörkum yfir, 10:6, þegar tæplega 13 mínútur voru liðnar af leiknum og þá tóku Eistar leikhlé.

Það reyndist happafengur fyrir íslenska liðið því þó að sóknarleikurinn hefði gengið vel framan af hafði varnarleikurinn ekki verið neitt frábær.

Ísland skoraði fjögur mörk í röð eftir leikhléið og komst í 14:6. Dener Jaanirmaa minnkaði muninn í 14:7 með marki úr vítakasti þegar rúmlega 20 mínútur voru liðnar af leiknum. Ísland skoraði þá þrjú mörk í röð, komst í 17:7, og náði tíu marka forskoti í fyrsta sinn í leiknum.

Flatt í seinni hálfleik

Íslenska liðið hélt áfram að þjarma að Eistunum með Bjarka Má fremstan í flokki en hann skoraði fjögur af sex síðustu mörkum Íslands í fyrri hálfleik. Alls skoraði hann tíu mörk í hálfleiknum en Ísland leiddi með þrettán mörkum í hálfleik, 23:10.

Snorri Steinn Guðjónsson skipti út öllu byrjunarliði sínu í síðari hálfleik, að línumanninum Arnari Frey Arnarssyni undanskildum.

Liðin skiptust á að skora í upphafi síðari hálfleiks, líkt og í upphafi fyrri hálfleiks, en íslenska liðið var þó alltaf skrefi á undan. Haukur Þrastarson kom Íslandi fimmtán mörkum yfir, 26:11, eftir fimm mínútna leik.

Reynir Þór Stefánsson kom Íslandi sextán mörkum yfir í fyrsta sinn í leiknum eftir 40 mínútna leik, 31:15.

Liðin héldu áfram að skiptast á að skora en Ísland var með fjórtán marka forskot, 37:23 þegar fimm mínútur voru til leiksloka.

Eistarnir skoruðu hins vegar síðustu tvö mörk leiksins og Ísland fagnaði þrettán marka sigri í leikslok, 39:26.

Næstu leikir íslenska liðsins í undankeppninni eru gegn Serbíu í mars á næsta ári en undankeppninni lýkur í maí á næsta ári.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅