Vinsæl matartegund getur aukið hættuna á sykursýki

Pressan

Sunnudaginn 8. nóvember 2026 16:30

Franskar kartöflur eru ekki beinlínis hollustufæða.

Það getur verið ansi gott að fá sér einn skammt af frönskum kartöflum með matnum. En það er kannski best að stilla neyslunni á þeim í hóf því miðað við niðurstöður rannsóknar frá því á síðasta ári þá eru tengsl á milli neyslu á frönskum kartöflum og hættunar á að fá sykursýki 2.

Rannsóknin var birt í vísindaritinu BMJ að sögn norska Dagbladet. Rannsóknin byggðist á gögnum rúmlega 205.000 fullorðinna Bandaríkjamanna og náðu yfir nokkra áratugi.

Rannsóknin leiddi í ljós að það að borða þrjá aukaskammta af  kartöflum á viku eykur líkurnar á sykursýki 2 um fimm prósent. En hvað varðar franskar kartöflur var niðurstaðan enn verri því þrír aukaskammtar auka líkurnar á sykursýki 2 um tuttugu prósent.

Rannsóknin sýnir fram á tölfræðilegt samhengi á milli kartöfluneyslu og aukinnar hættu á að fá sykursýki 2 en sannar í sjálfu sér ekki að kartöflur og franskar kartöflur valdi sykursýki 2.

Erik Arnesen, aðalráðgjafi hjá norska heilbrigðisráðuneytinu, sagði í samtali við Dagbladet að rannsóknin sanni ekki að kartöflur, soðnar, bakaðar eða í kartöflumús, valdi aukinni hættu á sykursýki en sýni fram á sterk tengsl á milli neyslu franskra kartaflna og sykursýki 2.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅