Hætti í skóla, vann í verksmiðju og er nú ríkasta kona Kína

Pressan

Sunnudaginn 8. nóvember 2026 16:30

Zhou Qunfei. Mynd:Lens Technology

Þegar Donald Trump, Bandaríkjaforseti, heimsótti Kína í maí var að sjálfsögðu boðið til hátíðarkvöldverðar. Þar voru meðal annarra Elon Musk og Tim Cook, frá Apple. Á milli þeirra sat Zhou Qunfei sem er 56 ára kona sem hætti í skóla, vann sem verkakona í verksmiðju en er nú ríkasta kona Kína.

The Independent skýrir frá þessu og segir að Zhou hafi stofnað glerframleiðslufyrirtækið Lens Technology og hafi auðgast gríðarlega á rekstri fyrirtækisins. Auður hennar er metinn á sem nemur um 233 milljörðum íslenskra króna. Jókst auður hennar um 15% síðasta árið að því er segir á listanum Hurun Richest Women in China 2026, sem var birtur nýlega.

Zhou fæddist 1970, hætti í skóla á unglingsaldri, flutti til Shenzhen og vann sem verkakona í verksmiðju sem framleiddi gler á úr. Laun hennar voru sem nemur um 150 íslenskum krónum á dag á núvirði.

Þegar hún var 23 ára stofnaði hún glervinnslufyrirtæki, lærði upp á eigin spýtur þróaða tækni við skjáprentun og framleiðslu kúpts glers.

Síðar stofnaði hún Lens Technology sem varð síðar stórframleiðandi glerskjáa fyrir snjallsíma.

Rekstur fyrirtækisins fór á mikið flug þegar það fór að framleiða skjái fyrir iPhone símana frá Apple 2007.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅