Ólafur spyr hvað Stefáni Eiríkssyni og samstarfsfólki hans gangi til – „RÚV hafnaði myndinni um Ómar“

Ólafur Sveinsson, kvikmyndagerðarmaður, segir að RÚV hafi hafnað því að sýna heimildarmynd hans um Ómar Ragnarsson og gefur lítið fyrir svör um peningaskort. Hann segir reynt að koma í veg fyrir að þjóðin fái að sjá myndina.

„RÚV hafnaði myndinni um Ómar og bar því við að það væri ekki til nægur peningur til að kaupa sýningarréttinn,“ segir Ólafur í grein á Vísi.

Ólafur hefur unnið að heimildarmyndinni um nokkur skeið. Það er um skemmtikraftinn, fréttamanninn, frjálsíþróttakempuna, rallýkappann, leikarann, söngvarann, leiðsögumanninn, flugmanninn og náttúruverndarsinnann Ómar Ragnarsson sem er nú orðinn 86 ára gamall.

Meginstefið í myndinni er náttúruverndarbarátta Ómars, sem var mjög áberandi í kringum byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Ólafur segir að RÚV hafi einnig hafnað því að kaupa aðra mynd hans, „Horfinn heimur“, sem fjallar einmitt um Kárahnjúkavirkjun og áhrif hennar undanfarin 20 ár.

Ekki minnst á afmælinu

„Ómar færði landið inní stofu sjónvarpsáhorfenda með myndum sínum og fréttum, þar sem Stikluþættir hans eru hvað eftirminnilegastir,“ segir Ólafur. „Því sérkennilegra er að Sjónvarpið, sem seldi heilu sendibílsfarmana af Stikluþáttum hans á hverju ári, án þess að Ómar fengi krónu fyrir, skuli varla hafa minnst á hann og hans merka framtak í tengslum við 60 ára afmæli Sjónvarpsins í haust.“

Sjá einnig:

Segir engan áhuga vera á Ómari á vinnustað hans til áratuga

Það sama hafi verið uppi á teningnum á 85 ára afmæli Ómars í september í fyrra.

„Afmælis hans var getið í öllum helstu fjölmiðlum landsins, í flestum með viðtölum og greinum, nema Sjónvarpi og Útvarpi allra landsmanna RÚV. Þar var látið nægja að geta þess að síðasta lag sem var leikið fyrir hádegisfréttirnar 16. september 1985 væri lag eftir Ómar við ljóð Snorra Hjartarsonar. Það var allt og sumt. Þetta stórafmæli Ómars þótti ekki einu sinni svo merkilegt, að það væri ástæða til þess að greina frá því á heimasíðu RÚV,“ segir hann.

Peningaskortur sé fyrirsláttur

Ólafur segir það fyrirslátt að peningaskortur valdi því að RÚV hafni myndinni. Tekjurnar árið 2025 hafi verið um 9,4 milljarðar króna. Þetta væru mjög ódýrar sendimínútur fyrir stöðina.

„Sjónvarpinu er fullkunnugt um að ég er háður því að fá greitt fyrir sýningarréttinn á myndinni til að geta klárað hana. Ekki til að fá krónu í eigin vasa fyrir nokkurra ára vinnu við hana, heldur bara til að geta klárað hana,“ segir Ólafur.

Getur ekki klárað

Er það vegna þess að hann þarf að greiða 700 krónur plús 24 prósenta virðisaukaskatt á hverja sekúndu af efni frá Sjónvarpinu. Í þessu tilviki er það meira en milljón krónur. En ef Sjónvarpið hefði samþykkt myndina hefði ekki þurft að greiða neitt.

„Í praksís þýðir það að Sjónvarpið gerir allt sem í þess valdi stendur til að koma í veg fyrir að ég nái að klára myndina um Ómar Ragnarsson og að almenningur á Íslandi fái að sjá hana. Það eru kaldar kveðjur frá forstöðumönnum Sjónvarpsins á 60 ára afmæli þess til lang vinsælasta sjónvarpsmanns landsins fyrr og síðar, manns sem er goðsögn í lifandi lífi og af fjölmörgum talinn þjóðargersemi,“ segir Ólafur að lokum. „Og það er alveg örugglega þvert á vilja mikils meirihluta íslenskra sjónvarpsáhorfenda. Maður hlýtur að spyrja, hvað Stefáni Eiríkssyni útvarpsstjóra og samstarfsfólki hans gengur eiginlega til?“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅