Brighton í annað sætið – Chelsea tapaði
Brighton er komið í annað sæti ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta eftir heimasigur á Brentford, 2:0, í Brighton í dag.
Brighton er með 22 stig í öðru sæti, fimm stigum á eftir toppliði Arsenal. Brentford er hins vegar í áttunda með 14.
Diego Gómez kom Brighton yfir á 15. mínútu leiksins en átta mínútum síðar fékk Igor Thiago framherji Brentford beint rautt spjald.
Pascal Gross skoraði síðan seinna mark Brighton úr vítaspyrnu á 42. mínútu.
Sunderland af botninum
Sunderland vann þá flottan 1:0-heimasigur á Chelsea á Leikvangi ljóssins.
Enzo Le Fée skoraði sigurmark Sunderland á 36. mínútu leiksins.
Sunderland er nú í 18. sæti með átta stig en Chelsea er í fimmta með 16.
Áttundi sigurinn í röð
Bournemouth vann sinn áttunda leik í röð í öllum keppnum þegar liðið sigraði Ipswich, 2:1, á Portman Road í Ipswich.
Evanilson skoraði fyrra mark Bournemouth en það seinna var sjálfsmark. Jack Clarke skoraði síðan mark Ipswich úr vítaspyrnu.
Bournemouth er í sjöunda sæti með 15 stig en Ipswich er í 14. sæti með ellefu.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗