Tíu létust þegar bíll hafnaði í stöðuvatni
Erlent | AFP | 8.11.2026 | 16:02
Í Rio de Jainero á suðausturströnd Brasilíu. Myndin tengist fréttinni ekki beint. AFP/Tercio Teixeira
Í það minnsta tíu eru látin eftir að bíll endaði í stöðuvatni nærri borginni Rio de Jainero í Brasilíu.
Brasilískir embættismenn greina frá þessu.
Slysið varð í gærkvöld í um 140 kílómetra fjarlægð frá borginni í Barra Mansa-héraði.
„Fórnarlömb slyssins voru þegar látin þegar þau voru tekin úr bílnum,“ sagði í tilkynningu frá yfirvöldum Rio de Jainero-ríkis.
Um 30 slökkviliðsmenn auk tveggja kafara voru kallaðir á vettvang.
Yfirvöld á svæðinu segja að um slys sé að ræða en lögreglumenn rannsaka tildrög þess.
Mikil rigning varð í Rio de Jainero-ríki umrætt kvöld. Hún náði til fjölfarinna ferðamannastaða eins og Copacabana-strandarinnar í Rio de Jainero.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
