„Nú er Reykjavík að verða þekkt sem vændisborg“
Í ítarlegum pistli tíundar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra aðdraganda og markmið þess vændiskaupafrumvarps sem hún kynnti í vikunni, ásamt því að gera grein fyrir vændismarkaðnum á Íslandi. mbl.is/Karítas
Markmið nýs vændisfrumvarps dómsmálaráðherra er ekki að dæma kaupendur vændis til fangelsisvistar, þar sem ráðherra sér það fyrir sér að slíkum brotum verði að jafnaði lokið með skilorðsbundnum fangelsisdómi, heldur að ítreka fælingarmátt og draga úr eftirspurn með því að nöfn kaupenda verði birt opinberlega.
Í ítarlegum pistli tíundar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra aðdraganda og markmið þess vændiskaupafrumvarps sem hún kynnti í vikunni, ásamt því að gera grein fyrir vændismarkaðnum á Íslandi.
Vændiskaup hafi verið gerð refsiverð árið 2009, m.a. með það að markmiði að draga úr eftirspurn, en þær aðgerðir hafi ekki borið nægilegan árangur vegna hvernig unnið hafi verið úr vændismálum með afgreiðslu þeirra sem sektarmála.
„Og nú er Reykjavík að verða þekkt sem vændisborg.“
Flestar í vændi vegna ömurlegra aðstæðna
Sú grundvallarbreyting sem gerð er með frumvarpinu er sú að þegar vændiskaupamál komi til kasta lögreglu sé gefin út ákæra í stað þess að hægt sé að ljúka málinu með því að kaupandi greiði sekt.
„Hundruð kvenna eru auglýstar í vændi hér á landi eins og fram kom í þætti Kveiks fyrr í vor,“ segir Þorbjörg. „Þar var sýnt frá því hvernig vændiskaupendur streymdu inn og út af gististað í Reykjavík á öllum tímum sólarhringsins.“
Í umfangsmikilli alþjóðlegri aðgerð lögreglu vegna mansals í fyrra hafi fundist 36 hugsanlegir þolendur mansals. „Nær allir þolendur eru konur. Mikill meirihluti seldur í vændi. Meirihluti var frá Rúmeníu en þolendur voru einnig frá Kólumbíu, Paragvæ, Malasíu, Bretlandi, Portúgal, Kína, Nígeríu og Gana.“
Þorbjörg segir í færslu sinni að nauðsynlegt sé að horfst sé í augu við þá stöðu sem ríkir, að konur og stelpur sem starfi í vændi séu flestar þar vegna þess að ömurlegar aðstæður hafi leitt þær þangað.
Skilgreind sem kynferðisbrot af ástæðu
Samkvæmt gildandi lögum varða vændiskaup sektum eða fangelsi allt að einu ári, en ramkvæmdin hafi hins vegar verið sú að fyrsta broti hafi verið lokið með því einu að greiða 200.000 kr. sekt hjá lögreglu.
„Sú afgreiðsla er ekki í samræmi við alvarleika vændis. Það þýðir að engin ákæra er gefin út og að sakborningur fer ekki fyrir dóm. Nafn hans er ekki birt.“
Þá tekur hún fram að vændisbrot falli undir kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga, og að það sé ekki að ástæðulausu.
skipulagðri brotastarfsemi
Því segir Þorbjörg það skipta máli að beina sjónum ekki aðeins að þeim sem skipuleggi starfsemina og hagnast á henni, heldur líka þeim sem halda henni gangandi með eftirspurn.
„Þar sem vændi þrífst, þar þrífst önnur brotastarfsemi. Ætlum við okkur að ná árangri í skipulagðri brotastarfsemi er ekki hægt að undanskilja þennan markað. Vændiskaup eru hluti af stærri veruleika þar sem mansal, misneyting og skipulögð brotastarfsemi þrífst í skjóli eftirspurnar eftir vændi,“ segir í færslunni.
Vitað sé hverjar aðstæður mjög margra kvenna og stúlkna sem starfa í vændi eru þó sú sé vitaskuld ekki reyndin í öllun tilfellum, og það verði að vera hægt að ræða um þennan markað út frá stóru myndinni.
„Í rannsókn Stígamóta frá 2022 kemur fram að vændi sé neyðarráð í erfiðri félagslegri stöðu og afleiðingar þess á líkamlega og andlega líðan séu alvarlegar, djúpstæðar og langvarandi.
Reynsla Stígamóta sýnir okkur líka að mörkin á milli vændis og mansals geta verið mjög óljós,“ segir í færslu Þorbjargar. „Það sem í upphafi getur virst sem leið til fjárhagslegs sjálfstæðis getur þróast yfir í aðstæður þar sem aðrir hagnýta sér varnarleysi.“
Aðilar hagnýti sér stöðu seljenda og bjóði öryggisgæslu, húsnæði og miðlun með þeim afleiðingum að einstaklingurinn missi allt ákvörðunarvald og allt sjálfstæði.
„Við vitum einfaldlega of mikið um vændismarkaðinn til að láta eins og hér sé bara í flestum tilvikum um sjálfstætt val manneskju að ræða.“
„Reykjavík að verða þekkt sem vændisborg“
Því leggur Þorbjörg til að vændiskaupendur hætti að njóta sérmeðferðar innan réttarkerfisins, enda birtist nöfn sakborninga að jafnaði í dómsmálum nema þegar nafnleynd verji hagsmuni brotaþola.
Í vændiskaupamálum sé yfirleitt ekkert í aðstæðum seljenda sem kallar á það að nafn kaupanda sé ekki birt.
„Þegar kaup á vændi voru gerð refsivert árið 2009 var markmiðið m.a. að draga úr eftirspurn og vinna gegn mansali. Þessi markmið hafa ekki náðst fram vegna þess hvernig úr þessum málum hefur verið unnið með afgreiðslu þeirra sem sektarmála,“ segir í færlsunni.
„Og nú er Reykjavík að verða þekkt sem vændisborg.“
Fangelsisvist vitaskuld ekki markmiðið
Ráðherra segir markmiðið þó vitaskuld ekki vera að dæma kaupendur vændis til fangelsisvistar, enda sjái hún fyrir sér að þessum brotum verði að jafnaði lokið með skilorðsbundnum dómum. Markmiðið sé einfaldlega að tryggja að brot af þessu tagi hljóti þá meðferð sem alvarleiki þeirra kalli á.
„Við megum ekki missa sjónar á því markmiði að sporna gegn mansali og alvarlegri misneytingu í tengslum við vændi,“ segir að endingu í færslunni.
„Það er því mín pólitíska afstaða að það sé bæði rétt og mikilvægt að stíga þetta skref. Og ég er stolt af þessu frumvarpi.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗