Bandaríkin hvetja Kúbubúa til að vinna með CIA

Pressan

Sunnudaginn 8. nóvember 2026 15:30

Havana er höfuðborg Kúbu.

Ef maður vill breytingar á Kúbu, þá er nú hægt að hefja leynilegt samstarf við bandarísku leyniþjónustuna CIA. Þetta skrifaði Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, nýlega á samfélagsmiðlinum X.

Hann beindi orðum sínum til Kúbubúa sem eru skúffaðir vegna „brotinna loforða, spillingar og forréttindalífs sumra“.

„Til þeirra sem vilja jákvæðar breytingar á Kúbu, stundin er runnin upp,“ skrifaði hann.

Rubio var áður þingmaður fyrir Flórída en þar eru landflótta Kúbverjar stór hluti af kjósendum.

Donald Trump var nýlega í Flórída og lofaði að snúa sér að Kúbu um leið og stríðið við Íran er búið. Reuters skýrir frá þessu.

Trump fékk 68% af atkvæðum landflótta Kúbumanna í Flórída í forsetakosningunum 2024.

Á kosningafundi í Flórída nýlega, sagði hann að hugsanlega verði gerðar fleiri árásir á Íran en að bandaríski flotinn muni koma við á Kúbu á leiðinni heim.

„Við látum eitt af skipunum leggjast við ankeri 45 metra frá ströndinni. Þá gefast þeir upp og síðan sendum við Marco Rubio á staðinn til að klára samninginn,“ sagði Trump.

Trump hefur aukið þrýstinginn á Kúbu nú á síðara kjörtímabili sínu. Þegar hann ávarpaði allsherjarþing SÞ í september sagði hann Kúbu vera misheppnað ríki og að „frelsið muni koma til Kúbu“. Þetta vakti mikla reiði hjá kúbversku sendinefndinni sem yfirgaf salinn í mótmælaskyni.

Trump hefur lýst því yfir að markmið hans sé að knýja fram stjórnarskipti á Kúbu.

Landið er undir miklu álagi vegna hafnbanns Bandaríkjanna á olíuflutninga til landsins. Landsmenn glíma við eldsneytisskort og títt rafmagnsleysi og ekki bætir úr að innviðirnir eru slitnir og mjög illa farnir.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅