Skildi sex ára dóttur eftir eina um miðja nótt til að halda sæti hans í Pokemon röð
John-Michael Dooley, ungur faðir frá Suður Karólínu fylki, hefur verið handtekinn eftir að hafa skilið sex ára dóttur sína úti um miðja nótt. Lét hann hana halda sæti sínu í röð til þess að komast á Pokemon sölu.
TMZ greinir frá þessu.
Dooley var handtekinn á föstudag, 6. nóvember, í borginni Charlestown í Suður Karólínu og er grunaður um alvarlega vanrækslu og að stefna dóttur sinni í voða.
Vitni að atvikinu sáu Dooley skilja sex ára dóttur sína eftir fyrir utan Pokemon safnkorta verslun klukkan 1 um nótt með aðeins teppi og kodda. Kom hann ekki aftur fyrr en eftir rúman klukkutíma.
Vitnið hringdi á lögregluna sem kom og handtók Dooley um klukkan 2:30. Var hann yfirheyrður og viðurkenndi að hafa skilið stúlkuna eftir til þess að halda staðnum hans í röðinni fyrir viðburð í versluninni.
Var hann fangelsaður og ákærður en stúlkunni, sem var óhult, komið í vörslu barnaverndaryfirvalda. Dooley á mæta fyrir dómara þann 18. desember til þess að svara til saka.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗