Alvarlegt atvik í Noregi: Stúkan gaf sig
Leikur Tromsö og Bodö/Glimt í norsku úrvalsdeild karla í fótbolta var stöðvaður eftir að hluti stúkunnar fyrir stuðningsmenn gestaliðsins gaf sig.
Nokkrir stuðningsmenn féllu niður um stúkuna og var einn þeirra fluttur á sjúkrahús til frekari skoðunar.
Atvikið átti sér stað á 41. mínútu leiksins. Nikita Haikin, markvörður Bodø/Glimt, vakti athygli dómarans á því sem hafði gerst og var leikurinn stöðvaður samstundis.
Samkvæmt lögreglu er staðfest að tveir einstaklingar hafi fallið niður um stúkuna en alls voru fjórir skoðaðir af heilbrigðisstarfsfólki.
„Einn einstaklingur hefur verið fluttur á sjúkrahús en hinir voru skoðaðir á vettvangi og virðast hafa það gott,“ sagði Simen Pedersen, fjölmiðlafulltrúi Bodö/Glimt, í samtali við NRK. Hann staðfesti jafnframt að sá sem fluttur var á sjúkrahús hefði verið með meðvitund.
Stúkan ekki notuð á ný
Lögreglan hefur hafið rannsókn á atvikinu. Henrik Melsbö, varðstjóri lögreglunnar, segir að hluti stúkunnar hafi gefið sig með þeim afleiðingum að fólk féll niður fyrir hana.
Stúkan var tæmd í kjölfarið og verður sá hluti hennar ekki notaður á nýjan leik. Tromsö sendi einnig frá sér yfirlýsingu þar sem félagið sagði atvikið alvarlegt og að fylgst yrði náið með líðan stuðningsmannanna sem hlut áttu að máli.
Leikmenn beggja liða héldu til búningsherbergja á meðan brugðist var við atvikinu. Ákveðið var að hefja leikinn á ný klukkan 16 að staðartíma eða 15 að íslenskum tíma.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗