Fjórir létu lífið í lestarslysi
Erlent | AFP | 8.11.2026 | 14:49
Fjórir í það minnsta létust í lestarslysi sunnan við Kaíró, höfuðborg Egyptalands, fyrr í dag.
Að sögn yfirvalda þar í landi slösuðust tugir í slysinu.
Rannsókn hafin
Járnbrautastofnun Egyptalands sagði að lest sem var á leið frá Giza til Fayoum hefði ekið aftan á aðra lest sem var á leið suður frá Kaíró til borgarinnar Aswan.
Abdel Fattah al-Sisi forseti Egyptalands segist hafa fylgst áhyggjufullur með gangi mála í dag. Hann hafi falið yfirvöldum að hefja rannsókn á málinu tafarlaust.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗