Björn Jón skrifar: Agalausa kjaftæðið

Eyjan

Sunnudaginn 8. nóvember 2026 15:00

Bal du moulin de la Galette. Olíumálverk Pierre-Auguste Renoir frá árinu 1876. Varðveitt á Musée d'Orsay í Parísarborg.

Athygli mín var á dögunum vakin á nýbirtri ritrýndri grein tveggja fræðimanna, en annar er lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Samkvæmt rannsóknarniðurstöðunum er „jafnréttismenntun“ fyrir borð borin við stærðfræðikennslu á unglingastigi grunnskóla, en umrædd „jafnréttismenntun“ á meðal annars að fela það í sér að kennarar „geri ráð fyrir fjölbreytileika nemendahópa“. Í greininni segir að rannsókn höfunda bendi til þess að „kennarar sem þekktu til kynjaðra staðalmynda og ynnu í anda jafnréttismenntunar væru líklegri til að skapa nemendum sínum örugg rými, en í slíkum rýmum hafa nemendur betri tækifæri til náms og kennarar (og nemendur) grípa tækifæri sem gefast til að ögra kynjuðum valdatengslum [sic]“. Umrædd rannsókn er byggð á svörum sjö stærðfræðikennara í fimm grunnskólum. Sjálfur myndi ég ekki treysta mér til að draga nokkrar almennar ályktanir út frá svo litlum hópi en þetta virðist horfa öðruvísi við í félagsvísindunum.

Þessi litla grein er að mínu viti ein birtingarmynda þess öngstrætis sem menntamál þjóðarinnar eru komin í — hið raunverulega inntak menntunar er orðið fullkomið aukaatriði og alls kyns hjávísindi fylla rýmið. Er ekki rétt að stærfræðikennarar einbeiti sér að því að kenna stærðfræði? Ekki er vanþörf á í ljósi þeirrar stórkostlegu menntahnignunar sem á sér stað á okkar tímum. Fyrir utan það að „fjölbreytni“ er ekki æskileg í skólastofunni. Best er að nemendur veljist sem mest saman eftir kunnáttu og áhugasviði svo hægt sé að hámarka árangur hvers og eins; þar gildi hið sama og í íþróttunum þar sem menn raðast í riðla eftir getu.

Skemmdarverk á skólum

Það er engin nýlunda að félagsvísindamenn ráðist að grundvallarfögum. Þorsteinn Gylfason, prófessor í heimspeki, benti á það þegar á áttunda áratugnum, að stéttir ýmissa félagsvísindamanna hefðu það að markmiði (hér á landi sem annars staðar) að ryðja „móðurmálskennurum úr vegi“ svo þeir kæmust að „með sitt agalausa kjaftæði þar sem engin skil eru á réttu og röngu“. Þá var því haldið fram að íslensk málfræði og málvöndun væri „eitt máttugasta kúgunartæki yfirstéttarinnar í landinu“ eins og einn spekingurinn í félagsvísindadeildinni orðaði það. Sama máli gilti að mati viðkomandi um alla kennslu sem hefði það að markmiði að nemendur lærðu það sem réttast væri. Skólarnir ættu að hætta að skeyta um rétt og rangt — þá fyrst tækist þeim að gegna hlutverki sínu og unnin yrði sigur á þeirri „yfirstétt“ sem um var rætt.

Við sjáum nú afleiðingar þeirra skemmdarverka sem unnin voru á skólum landsins fyrir hálfri öld í nafni „framsækni“ og „jafnréttis“ þegar til að mynda Íslandssögu, mannkynssögu og landafræði var að miklu leyti úthýst. Vandinn er nefnilega sá að það tekur óratíma að leiða í ljós hvort breytingar á menntakerfum reynist heilladrjúgar. Bara af þeirri ástæðu einni ættu skólar almennt að vera frekar íhaldssamir.

Árásir á hefðbundna menntun eru þó síður en svo séríslenskt fyrirbrigði. Víða í hinum vestræna heimi hafa verið stigin skref til útvötnunar menntunar þar sem „félagsgreinar“ voru látnar leysa tungumál af hólmi af ótta við eitthvað sem kallað var „yfirstéttarmenntun“. Fyrir vikið fara nemendur á svig við þann aga og þá rökhugsun sem því fylgir að leggja fyrir sig langt tungumálanám. Nú skal allt vera afstætt og hreinar og hlutlægar forsendur dottnar úr tísku. Stærðfræðin er eðlilega næsta skotmark þessarar hugmyndafræði. Í áðurnefndri grein segir einmitt að stærðfræðin hafi „lengi verið talin hlutlaus, sem m.a. hefur orðið til þess að faggreinin sem slík hefur forðast gagnrýna skoðun á hvernig hún endurskapar félagslegt misrétti“.

Einmitt það já. Hvernig væri nú að stærðfræðikennarar fengju bara að einbeita sér að því að kenna stærðfræði?

Misgagnlegt háskólanám

Alberg Zennou, stjórnmálaritstjóri Le Figaro, ritar áhugaverðan pistil sem birtist í fyrradag þar sem hann gerir að umtalsefni mikinn fjölda intellos précaires — eða „fallvaltra menntamanna“ — fólks með háskólapróf sem fær ekki störfin sem það sóttist eftir eða hefur ekki öðlast þá félagslegu viðurkenningu sem það batt vonir við. Forsetaefni róttækra vinstrimanna, Jean-Luc Mélenchon, hefur undanfarin ár alið á gremju þessa fólks, sem margt hvert er hámenntað, hefur lokið meistaragráðum og doktorsprófum en jafnvel fests í láglaunastörfum, nær varla endum saman og býr við þröngan húsnæðiskost. Samkvæmt greininni er hér einkum um að ræða fólk í félags- og hugvísindum.

Jean-Luc Mélenchon telur óánægðum háskólamönnum trú um að ekki sé um að kenna skorti á hagnýtri menntun heldur sé við hið kapitalíska kerfi að sakast. Greinarhöfundur, Albert Zennou, segir vandann aftur á móti liggja í opnum aðgangi að háskólanámi óháð raunverulegum atvinnutækifærum. Krafa franskra menntskælinga í mótmælum um þessar mundir um enn frekari niðurfellingu aðgangshindrana í háskóla muni aðeins magna vandann — eðli máls samkvæmt. 

Zennou bendir á að rannsókn frá 2023 sem sýni að miðgildi launa þess háskólafólks sem fengi störf sem hæfðu menntun þeirra væri um 50% hærra en hinna. Og þeir sem eftir sitja eru ginnkeyptir fyrir popúlisma Mélenchon sem vefengir ekki val þessa fólks á námsleiðum — ógæfa þess er vitaskuld einhverjum öðrum að kenna en því sjálfu.

Leggjum hjáfræðin til hliðar

Hér er því ekki haldið fram að rétt sé að leggja sömu efnahagslegu mælistiku á allt nám en fram hjá því verður ekki litið að beina verður mönnum að einhverju marki þangað sem hæfileikar þeirra fá hvað best notið sín og þeir falli þá vonandi sem mest saman við hagsmuni þjóðfélagsins alls. Verkskipt og tæknivætt nútímaþjóðfélag þarf á sérhæfðum kunnáttumönnum að halda á ótal sviðum og farsæld þjóðfélagsins er að miklu leyti undir því komin að fremstu menn fái tileinkað sér bestu þekkingu til hugar og handa og reynist þrautgóðir námsmenn alla ævi.

Ég nefndi hér á dögunum bók Madeleine de Jessey L‘École des illettrés (eða Skólinn fyrir ólæsa) en Jessey er doktor í klassískum fræðum. Þar er greint frá því hversu mjög hefur verið dregið úr kennslu í grundvallarfögum í frönskum skólum umliðna áratugi samhliða því sem ýmsum árangursríkum og þaulreyndum aðferðum við lestrar- og málfræðikennslu var varpað fyrir róða, aðferðum sem gert höfðu milljónum ungra Frakka kleift að tileinka sér sameiginlega menningu þjóðarinnar og ná árangri í lífi og starfi. Í staðinn var innleidd stefna sem kennd var við jafnrétti sem skyldi hafa það að markmiði að berjast gegn forréttindum á grundvelli „erfða“ eins og það var kallað (fr. „héritiers“). Þessi svokallaða jafnréttisstefna hefur ekki aðeins stöðvað félagslegan hreyfanleika í Frakklandi heldur sömuleiðis gert þjóðina arflausa í menningarlegum skilningi.

Sífelld hnignun almennrar menntunar kallar á að lögð verði stóraukin áhersla á grundvallarfög: móðurmálið, önnur tungumál, stærðfræði og náttúrufræði. Hjáfræðin úr ranni félagsvísinda þurfa að víkja fyrir hinum raunverulega þekkingargrunni.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅