Kóki er ekki verkkvíðinn maður
„Ef þú hugsar alltaf um vandræði, þá lendirðu í vandræðum. En ef þú hugsar í lausnum, þá munu þær birtast. Það er heldur ekki gott að efast um ákvarðanir sínar. Fyrsta hugmyndin er yfirleitt sú besta.“
Þannig kemst Herbert Ólason, Kóki, að orði í ævisögu sinni, Aftur á bak, sem Logi Bergmann Eiðsson hefur ritað. Hann er þekktastur fyrir hestamennsku og viðskipti með hesta og hefur búið í 40 ár í Þýskalandi.
Að sögn Loga hefur Kóki lifað ævintýralegu lífi. Hann fæddist í Reykjavík 1943 og ólst upp í miðbænum. Var sendur í sveit sem strákur, náði síldarævintýrinu, lærði til smiðs og flutti til Akureyar um tvítugt eftir að hafa kynnst konu þaðan. Varð þar umsvifamikill athafnamaður, frumkvöðull og tískukóngur. „Kóki tekur allt á baráttunni; ævintýramaður sem skilur ekki merkingu orðsins nei. Hann er af gamla skólanum, þetta mun reddast og allt fara vel. Og renni menn á rassinn þá standa þeir bara upp aftur. Óhætt er að fullyrða að Kóki sé ekki verkkvíðinn maður.“
Fullkomlega einlægur
Logi segir samstarfið við Kóka hafa gengið eins og í sögu; þeir hafi smollið saman. „Það hefur verið ótrúlega gaman að kynnast þessum frænda mínum. Kóki er fullkomlega einlægur í sínum breyskleika. Kvennamál hans eru til dæmis mjög flókin en hann dregur hvergi neitt undan. Ég átti ekki von á því að hann myndi opna sig svona um þau mál sem enda yfirleitt með ósköpum. Hann var líka mjög opinn varðandi allan reksturinn sem gekk upp og ofan, hann var til dæmis mjög skuldugur um tíma. En alltaf lendir Kóki á fótunum og í dag er hann í mjög góðum málum. Óhætt er að segja að lífsviðhorf Kóka sé magnað og alltaf var hann örlátastur þegar hann átti lítinn eða jafnvel engan pening,“ segir Logi.
Nánar er rætt við Loga um bókina í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗