Bílslysið við Kleifá talið alvarlegt: Tveir í bílnum

Innlent | mbl | 8.11.2026 | 12:05 | Uppfært 14:50

Slysið átti sér stað við Kleifá á Snæfellsnesi og eru viðbragðsaðilar enn að störfum á vettvangi. mbl.is/Karítas

Björgunarsveitir, lögregla og fulltrúar Landhelgisgæslunnar eru enn að störfum við Kleifá þar sem bifreið fór út af vegi og hafnaði ofan í ánni. Tveir voru í bifreiðinni.

Þetta staðfestir Jónas Hallgrímur Ottósson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, í samtali við mbl.is.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á hæsta forgangi vegna slyssins á ellefta tímanum í dag og talið var að um alvarlegt slys væri að ræða.

Annar þeirra sem voru í bifreiðinni komst þaðan af sjálfsdáðum og að sögn Jónasar er hann í góðu ásigkomulagi.

Björgunarsveitir urðu hins vegar að ná hinum farþeganum út úr bifreiðinni og ekki er vitað hversu alvarlegir áverkar hans eru.

Löng bílaröð hefur myndast hjá slysstað.

Löng bílaröð hefur myndast hjá slysstað. mbl.is/Karítas

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅