Ný rannsókn – Tímasetning máltíða getur haft áhrif á heilann
Pressan
Sunnudaginn 8. nóvember 2026 14:30
Tímasetning máltíðanna getur skipt máli.
Þú hefur eflaust heyrt mörg hundruð sinnum að það eigi að borða minna, léttast og lifa hollara lífi. En kannski er það ekki bara magn matar sem heilinn horfir á.
Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til að það skipti líka máli hvenær máltíðirnar eru. Í rannsókn, sem vísindamenn við Rutgers háskólann gerðu, kom fram að eldri konur, sem borðuðu allar máltíðir dagsins á níu klukkustunda tímabili, stóðu sig betur í heilaprófum en samanburðarhópurinn. Báðir hóparnir léttust álíka mikið.
Niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar á næringarráðstefnunni NUTRITION 2026 í júlí. Rannsóknin hefur ekki enn verið ritrýnd né birt að sögn News-Medical.
47 konur á aldrinum 50 til 79 ára, sem voru allar í ofþyngd eða mikilli ofþyngd, tóku þátt í rannsókninni. Þær minnkuðu allar hitaeininganeyslu sína um 500 hitaeiningar á dag.
26 þeirra borðuðu allar máltíðir dagsins á níu klukkustunda tímabili, yfirleitt frá 10 til 18. Hinar héldu sig við fyrri venjur og borðuðu allar máltíðir dagsins á um 12 klukkustunda tímabili.
Eftir sex mánuði höfðu konurnar lést um sjö kíló hver.
Munurinn á hópunum kom í ljós þegar konurnar gengust undir próf sem reyndi á heilann. Konurnar, sem borðuðu á níu klukkustunda tímabili dag hvern, stóðu sig betur í verkefnum sem mæla rýmisskipulag og við að leysa vandamál. Þær gerðu einnig færri villur þegar reynt var á minnið og námsgetu en munurinn var of lítill til að hægt sé að útiloka að um tilviljun sé að ræða.
Engin munur var á milli hópanna þegar kom að viðbragðstíma og hæfileikans til að leysa mörg verkefni í einu.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗