Verður kvikmyndastjarnan forsetaframbjóðandi?
Orðrómarnir eru á kreiki í Bandaríkjunum. Mun sagan endurtaka sig þar sem kvikmyndastjarna verður forseti? Svona eins og gerðist þegar Ronald Reagan var kjörinn forseti.
Nú er það Óskarsverðlaunahafinn Matthew McConaughey, sem fór meðal annars með aðalhlutverkin í Interstellar og Dallas Buyers Club, sem er nefndur til sögunnar sem hugsanlegur forsetaframbjóðandi í næstu kosningum. Expressen skýrir frá þessu.
Leikarinn birti nýlega athyglisvert myndband á samfélagsmiðlinum X þar sem hann hvetur bandaríska kjósendur til að kjósa hvorki Repúblikana né Demókrata. Hvetur hann þá til að styðja óháða kjósendur þess í stað.
„Að vera óháður var hin upprunalega leið. Áður en það urðu til Repúblikanar eða Demókratar, voru Bandaríkjamenn,“ segir hann í myndbandinu.
Hann segir ekki neitt um að hann hyggist bjóða sig fram til forsetaembættisins en Joe Manchin, fyrrum ríkisstjóri og þingmaður, dregur ekki dul á að hann telur McConaughey hafi með þessu sett sjálfan sig í stöðu til að blanda sér í stjórnmál.
„Hann hefur hæfileikana. Hann er gáfaður, hann er sjarmerandi, hann getur talað til fólks. Hann hefur alla þá hæfileika og getu sem þarf til að sameina þjóðina,“ sagði Manchin í samtali við NewsNation.
Manchin hyggst styðja McConaughey ef hann býður sig fram.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗