„Hvítu trufflurnar eru stærri en jólin“
Leifur Kolbeinsson við störf á La Primavera. Á hvíttruffluhátíðinni leggur hann áherslu á einfalda rétti þar sem ferska trufflan fær að njóta sín. Ljósmynd/Aðsend
Leifur Kolbeinsson er farinn að fylgjast með veðrinu á Ítalíu löngu áður en fyrstu hvítu trufflurnar koma á La Primavera. Hann vill vita hvort þær séu farnar að finnast, hvort þær séu orðnar stórar og þroskaðar og hvernig ilmurinn sé. Þegar rétta augnablikið rennur upp fara hjólin að snúast.
„Ég fer allur í gírinn að heyra í bóndanum,“ segir Leifur. „Ég byrja snemma að fylgjast með og var byrjaður fyrir mánuði síðan að ræða við minn mann á Ítalíu. Þetta er alltaf tilefni til gleði þegar þetta gerist.“
Er tilhlökkunin jafnvel meiri en fyrir jólin?
„Ég er ekki frá því að þetta sé svoleiðis hjá okkur hérna og hjá mér. Hvítu trufflurnar eru stærri en jólin.“
En það er rétt tilgetið hjá lesendum, það er komið að árlegri hvíttruffluhátíð La Primavera. Fyrstu trufflurnar eru væntanlegar á mánudag og Leifur og samstarfsfólk hans hyggjast byrja að bjóða þær með réttum staðarins á þriðjudag.
Biðu eftir að kólnaði á Ítalíu
Hvítu trufflurnar koma frá Savitar í San Miniato í Toskana, vestan við Flórens. Leifur hefur um árabil verið í samstarfi við þá feðga Claudio og Marco Savini og fengið frá þeim ferskar trufflur til að bjóða gestum La Primavera.
Að þessu sinni hafi þurft að bíða aðeins lengur.
„Við seinkuðum þessu núna. Það er búið að vera svo heitt í sumar á Ítalíu og trufflan kom sér ekki á strik fyrr en í síðustu viku, þegar kólnaði hjá þeim. Það þarf kulda og raka svo hún vaxi,“ segir Leifur.
Hann lýsir því hvernig jarðvegur, tré og veðurskilyrði þurfi að fara saman. Trufflurnar vaxi neðanjarðar og sérþjálfaðir hundar séu notaðir til að finna þær.
Fyrsta sendingin er hálft kíló. Önnur er fyrirhuguð á miðvikudag.
„Við tökum meira á miðvikudaginn til þess að hafa þetta sem ferskast.“
Leifur sótti nýlega innblástur til Alba og Barolo á Ítalíu, þar sem hann fór í truffluleit og kynnti sér nýjar útfærslur á réttum með hvítum trufflum. Ljósmynd/Aðsend
Ferska trufflan allt önnur upplifun
Fyrstu kynni Leifs af trufflum voru af þeim varðveittum í olíu. Löngu síðar fékk hann fyrst að smakka ferska hvíta trufflu og fann strax muninn.
„Það er allt önnur angan og allt annað bragð og allt svo miklu fínlegra. Þetta er bara ólýsanlegt.“
Hann hefur hins vegar ákveðnar skoðanir á því hvernig trufflubragð hefur ratað í æ fleiri vörur og rétti. Þar nefnir hann meðal annars marineringar, franskar kartöflur og majónessósur með trufflubragði.
„Mér finnst svolítið búið að skemma þetta með öllum þessum essensum,“ segir hann.
Slíkt sé að hans mati fjarri þeirri upplifun sem ferska hráefnið gefur.
„Það er eitthvað sem þú þarft að ropa yfir í þrjár vikur á eftir og er ekki gott, að mér finnst.“
Sjálfur sækist hann eftir hófstilltari nálgun.
„Mér finnst frábært að fara út að borða og fá trufflu með einum rétti. Ég þarf ekki að borða tíu rétti með trufflum. Ég vil fá þetta fínlega og góða bragð.“
Hvítar trufflur eru verðmætt hráefni og verðið breytilegt. Að sögn Leifs getur kílóverðið verið frá um þrjú þúsund og upp í sjö þúsund evrur. Ljósmynd/Aðsend
Egg, smjör og truffla
Á La Primavera hefur Leifur lengi unnið með norðurítalska matarhefð og íslenskt hráefni. Þegar kemur að hvítu trufflunni vill hann halda réttunum einföldum og gefa henni svigrúm.
Á matseðlinum þessa daga verður því töluvert um pasta, egg, smjör og rjóma.
„Truffla og egg og truffla og smjör fara ákaflega vel saman. Bara spælt egg, fallegt og gott egg, með hvítri trufflu. Það er dásamlegur morgunmatur.“
Hann kom nýverið úr fimm daga ferð um Alba og Barolo í Piemonte á Ítalíu. Þar fór hann meðal annars í truffluleit með heimamanni og smakkaði rétti sem gáfu honum nýjar hugmyndir.
„Þetta er svona smá vinnuferð sem maður nýtur og lærir einhverja nýja rétti og nýjar útfærslur á trufflum. Mekka trufflunnar er í Alba og það er gaman að vera þar á þessum tíma.“
Einn morgunverður úr ferðinni situr sérstaklega í honum.
„Það var ævintýralega fallega spælt egg með ítölskum kúaosti. Sneið lögð ofan á eggið sem rétt bráðnaði og svo var trufflan skafin yfir. Þetta var alveg unaðslega gott.“
Sneidd yfir við borðið
Gestir La Primavera velja sér rétti af matseðlinum og geta síðan bætt ferskri hvítri trufflu við. Hún fylgir því ekki sjálfkrafa með réttunum.
Viðbótin kostar 5.800 krónur og segir Leifur um átta grömm fara á hvern disk.
„Þá kemur kokkur eða þjónn og sneiðir ferska hvíta trufflu yfir diskinn fyrir framan fólkið. Það er mikið atriði.“
Verðið fylgi markaðsverði hráefnisins hverju sinni. Að sögn Leifs getur kílóverðið verið frá um þrjú þúsund og upp í sjö þúsund evrur.
Margir gestanna koma ár eftir ár til að njóta þessarar stuttu vertíðar. Að þessu sinni verður boðið upp á trufflurnar í hádeginu frá þriðjudegi til föstudags og á fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld.
Ferskar hvítar trufflur eru sneiddar þunnt yfir réttinn. Leifur leggur áherslu á einfaldleikann svo ilmur þeirra og bragð fái að njóta sín. Ljósmynd/Aðsend
Svo taka jólin við
Leifur segir tímann frá miðjum nóvember og fram í desember vera þann sem hann horfi helst til fyrir hvítu truffluna.
„Svo eru aðrar trufflur á öðrum árstímum, en það er hvíta sem er kóngurinn.“
Þegar truffluveislan er afstaðin tekur jólaundirbúningurinn við á La Primavera. Sjálfur heldur Leifur áfram að gera það sem hann hefur mestan áhuga á.
„Lífið snýst um að hugsa um fjölskylduna, hugsa um mat og elda. Að halda sig við það sem maður kann og hefur áhuga á.“
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



