Lyfti 220 kílóum samanlagt

Íþróttir | mbl | 8.11.2026 | 13:45

Friðný Fjóla Jónsdóttir.

Friðný Fjóla Jónsdóttir. Ljósmynd/ATG

Friðný Fjóla Jónsdóttir keppti í í +86 kg flokki kvenna á heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum í Ningbo í Kína í nótt.

Friðný keppti í C-riðli og lauk keppni með 98 kg í snörun og 122 kg í jafnhendingu, samtals 220 kg.

Friðný hóf keppni í snörun með 98 kg sem fóru upp í fyrstu tilraun. Hún reyndi í kjölfarið við 101 kg og 103 kg en náði ekki að ljúka þeim lyftum með gildum hætti. Hún lauk því snörun með 98 kg.

Í jafnhendingu opnaði Friðný á 122 kg sem fóru upp og tryggði sér þar með gilt skor í samanlögðu. Hún hækkaði síðan í 126 kg en náði ekki að ljúka lyftunni. Í þriðju og síðustu tilraun reyndi hún við 128 kg en sú lyfta tókst ekki heldur.

Friðný lauk því keppni með 220 kg samanlagt. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅