„Það var mikil stemning á slökkvistöðinni“

Margir litu við á slökkvistöðinni að hvetja Berg til dáða, og einhverjir létu sjálfir á það reyna að fara hring um brautina. Samsett mynd/Ljósmynd/Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu

Slökkviliðsmaðurinn Bergur Vilhjálmsson fór í gær í gegnum þrekbraut slökkviliðsins, sem notuð er í inntökuferli slökkviliðsmanna, alls 35 sinnum til styrktar Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Hann kveðst ekki hafa æft sig sérstaklega fyrir þrekvirkið, enda vanur áskorunum af þessu tagi, en hann hafði þó upphaflega ætlað sér að taka 40 hringi í brautinni.

Eins og ætla má er Bergur með talsverðar harðsperrurnar og nokkuð þreyttur eftir þrekvirki gærdagsins, en tilfinningin er þó góð að hans sögn.

„Þetta gekk vonum framar, það kom fullt af fólki að styðja, margir prófuðu brautina og það var mikil stemning á slökkvistöðinni,“ segir Bergur í samtali við mbl.is.

„Ég er alveg góður í dag, fyrir utan harðsprerrurnar og smá þreytu, og við fáum að vita á morgun hversu mikið safnaðist hjá Ljósinu en það gekk alveg vonum framar.“

Dekkin, sem vega 70 kílógrömm, dró Bergur og togaði til skiptis yfir 40 metra leið. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Tók færri hringi en hann ætlaði sér

Í inntökuferli slökkviliðsmanna þarf að standast þrekpróf sem reynir á þol, styrk, einbeitingu og seiglu, en það er þreytt í sérstakri þrekbraut og eru þeir sem fara hana einu sinni sáttir með það.

Á þessum tólf klukkustundum fór Bergur alls 35 hringi um brautina, sem samanstendur af æfingum sem tengjast störfum slökkviliðsmanna, en brautina þekkir Bergur út og inn eftir áskorun gærdagsins og getur lýst henni með mikilli nákvæmni. 

„Ég byrjaði að taka 40 metra bóndagöngu með 48 kíló í heildina. Síðan fór ég í 20 metra stiga sem ég fór upp og niður þrisvar sinnum og fór svo í að draga 70 kílóa dekk 40 metra leið og togaði þau svo sömu 40 metra áður en ég fór aftur í stigann tvisvar sinnum.

Síðan voru 20 ketilbjöllusveiflur með 24 kílóa ketilbjöllur, svo fór ég að draga 70 kílóa dúkku 40 metra leið, hélt svo á 25 kílóa brunaslöngu upp og niður stigann einu sinni enn, og svo var ég með 20 kílóa handlóð sem ég sveiflaði ofan á kassa.“

Bergur hélt á brunaslöngunni, sem vegur 25 kíló, upp og niður stigann margoft. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Undirbjó sig ekki sérstaklega

Leikinn endurtók Bergur svo 34 sinnum, sem var þó örlítið sjaldnar en hann ætlaði sér.

„Þannig að ég fór 35 hringi, sem er, já, 34 fleiri heldur en vaninn er,“ segir Bergur og hlær við. „Ég stefndi nú að því að fara 40 hringi, en sökum þess að það var fullt af fólki og margir í brautinni þá tafðist ég aðeins. Sem var bara allt í góðu, samt, og gaman að sjá alla sem komu.“

Bergur undirbjó sig ekki sérstaklega fyrir þessa áskorun, en hann þekkir það vel að þreyta aflraunapróf af þessu tagi þar sem hann hefur gert það tvisvar á undanförnum árum til styrktar Píeta-samtökunum. Að auki er hann í góðu líkamlegu formi starfs síns vegna.

„Ég breytti svo sem ekkert æfingum hjá mér vegna þessa, og ég þekki það vel að gera svona aflraunir,“ segir hann.

„Í starfinu þurfum við að vera í góðu líkamlegu ástandi og vera mikið að gera sirka þessar æfingar í vinnunni. Þannig að þetta var bara rútínan, sko.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅