Segir að þetta bíði Russell Brand í fangelsi – „Verður með skotmark á sér“
Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 8. nóvember 2026 13:30
Rannsóknarblaðamaðurinn þekkir vel afdrif þekktra kynferðisbrotamanna.
Mark Williams-Thomas, rannsóknarblaðamaður og kvikmyndagerðarmaður, segir að ekki bíði Russell Brand gott í fangelsi. Hann verði með skotmark á sér allan tímann meðan hann verður í fangelsi.
Russell Brand var dæmdur fyrir nauðgun og þrjú önnur tilfelli kynferðisbrota á föstudag í dómstól í Lundúnum. Lengd fangelsisdómsins verður uppkveðinn á morgun, mánudag, en búast má við því að hann hljóti langan dóm. Brand er nú þegar kominn í fangelsi.
Mark Williams-Thomas, rannsóknarblaðamaður, segir í færslu á samfélagsmiðlum að Brand eigi ekki góðan tíma í vændum. Williams-Thomas hefur rannsakað mál og gert heimildarmyndir um þekkta kynferðisbrotamenn og barnaníðinga, meðal annars sjónvarpsmanninn Jimmy Savile og tónlistarmanninn Jonathan King.
Fortíðin verður nútíðin
„Hann verður með skotmark á sér allan tímann meðan hann verður í fangelsi,“ segir Williams-Thomas í myndbandi á TikTok, þar sem hann er með um 100 þúsund fylgjendur.
Sjá einnig:
Russell Brand sakfelldur fyrir nauðgun - „Óhjákvæmilega langur fangelsisdómur“
„Á mánudaginn verður kveðinn upp dómur yfir honum, og það verður mjög þungur dómur. Hann mun fara í fangelsi,“ segir hann. „En hvað mun koma fyrir hann og hvernig á hann að halda sér öruggum? Jú, hann er mjög auðugur maður, og hann hefur brotið af sér, en hann verður líka skotmark fyrir aðra fanga sem vilja öðlast einhvers konar viðurkenningu með því að ráðast á hann.“
Williams-Thomas bendir á að Brand sé enn þá risastórt nafn. Hann hafi 10 milljónir fylgjenda á X, 6 milljónir á Youtube og tæplega 5 milljónir á Instagram. Auðævi hans séu metin á um 20 milljónir punda, það er um rúmlega 3 milljarða króna.
„Hann hefur hreinsað sig af allri fyrri hegðun. En vandinn er sá, það fer eftir því hvað þú hefur gert í fortíðinni, því fortíðin þín getur mjög fljótt orðið að þinni nútíðinni þinni,“ segir hann.
Tvö morð á stuttum tíma
Í fyrra var Ian Watkins, dæmdur barnaníðingur og fyrrverandi söngvari rokkhljómsveitarinnar Lostprophets, myrtur í fangelsi í Bretlandi af samföngum sínum. Í mars á þessu ári var barnamorðinginn þekkti Ian Huntley myrtur af samföngum. Báðir voru sagðir hafa verið með skotmark á bakinu eftir dóma sína í ljósi frægðar sinnar og svívirðilegra brota.
Bresk fangelsisyfirvöld eru væntanlega meðvituð um þetta og hættuna sem Brand stafar af öðrum föngum. Að minnsta kosti hefur honum verið haldið frá öðrum föngum á meðan hann er í varðhaldi og bíður refsiákvörðunar eins og segir í frétt The Daily Star um málið.
Sjá einnig:
Upplýsingar um morðið á Ian Watkins koma í dagsljósið – „Það kemur mér á óvart að þetta hafi ekki gerst fyrr“
„Sonur minn sagði að Brand væri fyrir neðan hann. Hann sagði að engum væri leyft að hitta hann eða tala við hann,“ sagði móðir annars fanga sem kom til að heimsækja son sinn í fangelsið í Wandsworth.
„Svo virðist sem Brand hafi óskað eftir því að komast í aðalálmuna, en ákveðið var að setja hann í einangrun,“ segir önnur kona sem fór í heimsókn í fangelsið um helgina.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗