Byrjaði að fróa sér í 36 þúsund feta hæð
Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 8. nóvember 2026 13:30
United Airlines hefur verið í vandræðum með sjálfsfróun farþega á undanförnum vikum. Mynd/Wikipedia
Maður var handtekinn á flugvellinum í Chicago eftir að hafa fróað sér í sæti sínu í miðju flugi. Konan sem tilkynnti atvikið varð mjög hrædd.
Miðillinn Air Live greinir frá þessu.
Maður var handtekinn á O´Hare flugvellinum í Chicago mánudaginn 26. október eftir ósæmilega hegðun í flugvél. Hann gæti átt þungan dóm yfir höfði sér.
Handtekinn við lendingu
Í miðju 90 mínútna flugi flugfélagsins United Airlines frá Atlanta tók kona skyndilega eftir að maðurinn sem sat í gluggasætinu við hliðina á henni var búinn að draga út á sér skaufann og var að fróa sér. Var henni vitanlega brugðið og fylltist ótta.
Lét konan áhöfn flugvélarinnar strax vita af þessu. Hafði flugstjórinn samband við flugturninn og bað um að lögregla yrði kölluð til við lendingu.
Maðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, var handtekinn við komuna og hefur verið ákærður. Hann gæti átt þungan dóm yfir höfði sér í ljósi þess að um alríkisglæp er að ræða. Þá má einnig búast við því að hann verði settur í bann hjá United Airlines.
Ekki einsdæmi
Sams konar mál kom upp ekki fyrir löngu síðan í flugi frá San Diego í Kaliforníu til Newark í New Jersey, einnig í vél United Airlines.
Sjá einnig:
Kona fór úr fötunum í miðju flugi og byrjaði að eiga við sig – Farþegar í áfalli
Þá tók kona í gluggasæti allt í einu eftir því að maðurinn við hliðina á henni var að fróa sér.
„Ég vissi ekki hvað ég átti að gera, ég var frosin, skelfingu lostin... Ég var í raun föst í sætinu við gluggann. Ég hefði þurft að klifra yfir hann til að komast út, því hann hefur hallað sætinu sínu alveg aftur,“ sagði kona við sjónvarpsstöðina NBC.
Í því tilfelli var hins vegar ekki hringt á lögregluna og maðurinn ekki handtekinn. United Airlines hefur hins vegar beðið konuna afsökunar og greint frá því að maðurinn hafi verið settur í flugbann hjá þeim.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗