40 brotamönnum vísað úr landi frá lagabreytingum
Í júní samþykkti Alþingi frumvarp ráðherra um breytingar á lögum um fullnustu refsinga, sem kveða á um það að fangar sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi fái reynslulausn eftir að hafa afplánað þriðjung refsitímans í stað helmings. Ljósmynd/Colourbox
Fjörutíu erlendum brotamönnum hefur verið vísað úr landi á grundvelli lagabreytinga sem tóku gildi í sumar og veita yfirvöldum heimild til þess að vísa erlendum föngum úr landi með endurkomubanni eftir þriðjung afplánunar.
Þessu greinir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra frá í pistli á Facebook.
„Þessar lagabreytingar hafa nú þegar skilað árangri. Um 40 brotamönnum hefur í kjölfar lagabreytinganna verið vísað úr landi.“
Sterkaj og Kourani meðal hinna lausu
Í júní samþykkti Alþingi frumvarp ráðherra um breytingar á lögum um fullnustu refsinga sem kveða á um það að fangar sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi fái reynslulausn eftir að hafa afplánað þriðjung refsitímans í stað helmings.
Fangar sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi fá reynslulausn eftir að hafa afplánað þriðjung refsitímans í stað helmings áður, og strax eftir afplánun er föngum vísað úr landi.
Af þeim fjörutíu glæpamönnum sem vísað hefur verið úr landi eftir að hafa afplánað þriðjung refsitíma síns eru þeir Angjelin Sterkaj, sem dæmdur var í 16 ára fangelsi fyrir að hafa orðið Armando Beqirai að bana við heimili hans í Rauðagerði í Reykjavík árið 2021, og Mohamad Th. Jóhannesson, sem áður hét Mohamad Kourani.
Endurkomubannið verulega íþyngjandi
Brottvísuninni fylgir endurkomubann til Íslands og eftir atvikum allra 27 Schengen-ríkjanna. Slíkt bann er verulega íþyngjandi að mati Þorbjargar og því telur hún það hafa umtalsverðan fælingarmátt.
Markmið lagabreytingarinnar hafi verið að skapa svigrúm til að fleiri gætu hafið afplánun en ekki síður að koma brotamönnum með lítil tengsl við landið úr landi.
„Þá var það alveg skýrt að þeir fangar sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi og aldrei stóð til að aðlaga að samfélaginu eftir dóm eiga ekki að geta afplánað hluta dómsins á áfangaheimili eða undir rafrænu eftirliti líkt og aðrir,“ segir í færslunni. „Þessi úrræði þjóna fyrst og fremst því hlutverki að undirbúa komu fólks aftur út í samfélagið. Það á ekki við þegar fyrir liggur að brotamaður á að yfirgefa landið að afplánun lokinni.“
Þá segir Þorbjörg fangelsi landsins hafa fengið að sitja á hakanum of lengi og að sú staða sem nú ríki í fangelsismálum sé algjörlega óásættanleg. Uppbygging sé nú hafin að öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni og við fjölgun fangelsisrýma að Sogni.
„Við þurfum að nýta þau úrræði sem þegar eru fyrir hendi og bregðast við stöðunni.
Liður í þessu er að vísa erlendum föngum úr landi.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗