Bókaspjall: Lögreglumaður í sálarkreppu

Yndi er af haganlega gerðri sögufléttu og ráðgáta með óvæntum en rökréttum endi er listasmíði sem hefur gildi í sjálfri sér. Þetta hefur verið eitt helsta einkenni á glæpasögum Ragnars Jónassonar og ekki að ósekju að hann hefur fengið viðurnefnið „ráðgátumeistarinn“. 

Ragnar er afkastamikill höfundur og nýjasta bókin hans, „Svartakóf“, er 20. bókin hans. Í sögunni er vel hönnuð ráðgáta en nokkuð kveður að helsta galla Ragnars, sem er fábrotinn ritstíll. Málfar er sumstaðar einhæft og lýsingar sjaldan myndrænar. Oft hefur einfaldur stíll Ragnars fallið vel að söguþráðum bóka hans en í þessari sögu er lýst miklum sálarþrengingum og maður hefði viljað sjá meiri dýpt og frumleika í þeim lýsingum. Það breytir því ekki að heilt yfir er Svartakóf vel spunnin og skemmtileg glæpasaga. 

Tveir rannsóknarlögreglumenn úr fyrri bókum höfundar eru hér fyrirferðarmiklir þó að annar þeir sé bara minning. Annars vegar er það hinn ungi Helgi Reykdal og hins vegar forveri hans í starfi, ef svo má segja, Hulda, sem hvarf sporlaust, en Helgi fær skrifstofuna hennar til afnota. Dyggir lesendur Ragnars vita hvað varð um Huldu en það vita hvorki Helgi né aðrar persónur bókarinnar. Kollegar Huldu eru helst á því að hún hafi fyrirfarið sér en það er firra.

Helgi mátti þola heimilisofbeldi af hendi fyrrverandi sambýliskonu sinnar, Bergþóru, sem mikið er fjallað um hér en var þó lýst betur og af meiri frumleika í fyrstu bók Ragnars um Helga. Eftir sambandsslitin varð  Bergþóra síðan kærustu Helga að bana, Anítu, og virðist ætla að komast upp með það því atvikið er flokkað sem umferðarslys. Snemma í sögunni er Bergþóra hins vegar myrt og sterkur grunur fellur á Helga, en kollegar hans vilja fá hann úrskurðaðan í gæsluvarðhald. 

Helgi fer jafnframt að grúska í gömlum sakamálum sem voru á borði Huldu, meðfram því að reyna að grafast fyrir um afdrif hennar. Eitt þessara gömlu mála Huldu gæti haft tengsl við atburði sögunnar, en frásögnin um það mál er býsna mögnuð og er meðal þess sem lyftir þessari bók upp. 

Úr þessu öllu blandar höfundur býsna vel heppnaðan kokteil þó að þetta sé að mínu mati nokkuð frá því að vera besta ráðgátan úr smiðju meistarans. Það er smekksatriði. 

Svo aftur sé kvartað yfir ritstílnum þá eru sífelldar endurtekningar á sömu hugsunum Helga þreytandi. Um leið skal það viðurkennt að endurtekningarnar endurspegla að vissu leyti sálarkeppu hans, eðlilegt er að maður í hans aðstæðum sé haldin þráhyggju. Ragnar er kannski ekki sá höfundur sem best er til þess fallin að koma slíkum sálarhremmingum til skila, það liggur betur fyrir honum að smíða ráðgátur. Megi þær verða sem flestar. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅