Bílslysið við Kleifá talið alvarlegt: Tveir farþegar
Innlent | mbl | 8.11.2026 | 12:05 | Uppfært 12:53
Slysið átti sér stað við Kleifá á Snæfellsnesi og eru viðbragðsaðilar enn að störfum á vettvangi. mbl.is/Karítas
Björgunarsveitir, lögregla og fulltrúar Landhelgisgæslunnar eru enn að störfum við Kleifá þar sem bifreið fór út af vegi og hafnaði ofan í ánni. Tveir voru í bifreiðinni.
Þetta staðfestir Jónas Hallgrímur Ottósson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, í samtali við mbl.is.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á hæsta forgangi vegna slyssins á ellefta tímanum í dag og talið var að um alvarlegt slys væri að ræða.
Annar þeirra sem voru í bifreiðinni komst þaðan af sjálfsdáðum og að sögn Jónasar er hann í góðu ásigkomulagi.
Björgunarsveitir urðu hins vegar að ná hinum farþeganum út úr bifreiðinni og ekki er vitað hversu alvarlegir áverkar hans eru.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
