Dana White á fund Bandaríkjaforseta

Dana White og Donald Trump.

Dana White og Donald Trump. AFP

Dana White, forstjóri UFC, segist ætla að hitta Donald Trump Bandaríkjaforseta í Washington á morgun. Trump bauð honum í gær starf fjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins.

Samkvæmt heimildum CNN hefur White þó þegar afþakkað boðið.

Sinnir fullt af störfum

White var spurður út í boð forsetans á blaðamannafundi og sagðist þá vera á leið til Washington á fund Trumps eftir helgi.

„Ég er nú þegar með fullt af störfum,“ sagði hann við fréttamenn.

„Ég er viss um að við munum hafa eitthvað að ræða eftir það,“ bætti hann við. Hann vildi ekki svara því hvort hann hefði áhuga á að taka við starfinu.

Ruglaðist Trump á nöfnum?

Sú spurning hefur vaknað á samfélagsmiðlum og hjá erlendum fjölmiðlum hvort Trump hafi í gær ruglað saman bardagamógúlnum Dana White og fyrrum upplýsingafulltrúa varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna sem ber sama nafn.

Hún hefur einnig starfað sem kynningarfulltrúi hjá Fox News og hjá Heritage Foundation. Hún hóf feril sinn sem fjölmiðlafulltrúi þingflokks Repúblikana í fulltrúadeildinni.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅