Sagði frá fósturmissi í beinni útsendingu - Unnustan aftur ófrísk

Rodrigo Muniz, framherji Fulham, hefur greint frá erfiðleikum utan vallar á síðasta tímabili þegar eiginkona hans missti fóstur.

Brasilíumaðurinn, sem er 25 ára, skoraði jöfnunarmark Fulham í 1-1 jafntefli gegn Newcastle á laugardag. Markið kom á 83. mínútu og var hans fyrsta í ensku úrvalsdeildinni síðan í ágúst 2025.

Eftir leikinn opnaði Muniz sig um erfiða tíma.

„Síðasta tímabil var mjög erfitt fyrir mig. Ég fór í aðgerð og eiginkona mín var ólétt en því miður misstum við barnið,“ sagði Muniz.

Hann greindi jafnframt frá því að eiginkona hans væri aftur barnshafandi.

„Guð er alltaf góður. Hún er ólétt aftur og markið var fyrir barnið mitt. Ég vona að þetta tímabil verði öðruvísi.“

Muniz hefur komið inn á sem varamaður í öllum átta deildarleikjum sínum á tímabilinu en vonast til að fá fleiri tækifæri í byrjunarliði Fulham eftir landsleikjahléið.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅