Harmleikurinn á Tenerife - Ætla að styðja við eins árs dóttur hans fjárhagslega
Spænska knattspyrnufélagið Tenerife hefur heitið því að styðja fjölskyldu Jesús de Miguel fjárhagslega eftir hörmulegt andlát hans í vikunni.
De Miguel, sem var þrítugur, lést eftir árekstur við Jesús Owono, markvörð FC Andorra, í leik liðanna í spænsku B-deildinni.
Kærasta hans, María Fernández, og eins árs dóttir þeirra, Carla, voru í stúkunni þegar slysið varð.
Tenerife hefur nú ákveðið að tryggja fjárhagslega framtíð dóttur hans, að minnsta kosti þar til hún verður lögráða.
„Við ætlum að standa með stúlkunni og tryggja að öll Tenerife-fjölskyldan styðji hana,“ sagði Antonio Manuel Porro Granados, framkvæmdastjóri félagsins.
Fjársöfnun fyrir fjölskylduna hefur þegar skilað rúmlega 125 þúsund pundum en meðal þeirra sem hafa lagt sitt af mörkum eru Álvaro Morata og Álex Baena.
Lögregla rannsakar nú tildrög slyssins, þar á meðal viðbrögð sjúkraliða og áreksturinn sjálfan.
Owono hefur lýst yfir mikilli sorg vegna andlátsins og segist eiga erfitt með að átta sig á því sem gerðist.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗