Óvænt nafn á blaði hjá United
Enska knattspyrnufélagið Manchester United hefur áhuga á að festa kaup á vinstri bakverðinum Mahamadou Nagida, leikmanni Rennes í Frakklandi, í janúarglugganum.
Frá þessu greinir Teamtalk en United hefur fylgst með leikmanninum undanfarnar vikur.
United leitar að vinstri bakverði en Nagida, sem er 21 árs og frá Kamerún, er uppalinn hjá Rennes. Hann lék sinn fyrsta leik með aðalliði félagsins árið 2023.
Nagida er samningsbundinn Rennes til sumarsins 2029 og hefur leikið 13 landsleiki fyrir Kamerún.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗